fasteignasölur.is
Reykjafold 22
1 af 47

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Reykjafold 22,  sem er virkilega falleg og vel skipulögð 5 herbergja efri hæð í tvíbýli ásamt bílskúr, alls 198 fm. Gengið er inn af upphituðu bílaplani, beint inn í íbúðina. Góðar svalir sem tengjast svo nýjum sólpalli.  Gott hús sem fengið hefur gott viðhald í gegnum árin og íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð undanfarið.  Frábær staðsetning í Grafarvogi í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarkjarna, matsölustaði, sundlaug, skóla og leikskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Virkilega skjólsæl staðsetning og stutt í falleg útivistarsvæði.

Nánari lýsing:
Að innan skiptist íbúðin í forstofu, eldhús, hol, stofu- borðstofu, þvottahús, tvö baðherbergi, fjögur svefnherbergi og bílskúr. Baðherbergin eru flísalögð, endurnýjuð að hluta, annað þeirra með sturtu og hitt með baðkari, bæði með endurnýjuðum baðinnréttinum og speglaskápum. Fjögur góð svefnherbergi og öll með fataskápum. Rúmgott eldhús með upprunalegri viðarinnréttingu með lýsingu og glerskápum að hluta.  Vönduð heimilistæki í eldhúsi. Inn af eldhúsi er þvottahús með vinnuborði/skolvaski og skápum. Í opnu og björtu rými er stofa- borðstofa og hol þar sem m.a. er útgengt út á steyptar svalir á gafli hússins sem tengjast svo nýjum sólpalli með skjólgirðingu. Á gólfum er endurnýjað vandað harðparket frá Agli Árnasyni og á votrýmum og eldhúsi eru flísar.
Við húsið er hellulagt bílaplan sem er með snjóbræðslu að hluta, garður er frágenginn og snyrtilegur. Húsið var málað að utan árið 2023 og þak málað 2024. Bílskúr er 38,4 fm með sjálfvirkum hurðaopnara og úr honum er opið upp í þakrými sem nýtist sem geymslupláss.

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
129.900.000 kr.656 þ./m²
+11,0% á 2 árum
14. ágúst 2024Fyrsta sala
117.000.000 kr.591 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Reykjafold 22

112 Reykjavík
129.900.000 kr.656 þ./m²
Hæð4 svefn · 2 bað
Byggingarár1989TegundHæðStærð198 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20424571Fasteignamat117.500.000 kr.Brunabótamat95.750.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑