fasteignasölur.is
Mýrarland 5
1 af 34

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Nýlegt og snyrtilegt raðhús í botnlangagötu á Selfossi.  Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utan með viðhaldsléttri báruklæðningu, 94,9 fm að stærð byggt árið 2017. Lóðin er eignarlóð, þökulögð og mulningur í bílaplani. Stór sólpallur er við húsið með skjólgirðingu og heitum potti.   

               *******  Húsið er tilbúið til afhendingar við kaupsamning.  *******


Innra skipulag: Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu, tvö þeirra með fataskápum. Opin flísalögð forstofa með góðum fataskáp. Borðstofa- stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými og útgengt út á stóran sólpall. Þvottahús með innréttingu, vinnuborði, skolvask og flísum á gólfi. Í eldhúsi er snyrtileg innrétting með fínum heimilistækjum. Baðhergi er flísalagt í hólf og gólf, snyrtileg innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og sturta með  glervegg. Niðurtekið loft, hvítar loftaþiljur. Ljósgráar flísar eru á votrýmum en harðparket á öðrum stöðum. Svæðaskiptur gólfhiti.  Geymsluloft í kraftsperrum.

Snyrtileg og björt íbúð sem er tilbúin til afhendingar fyrir nýja eigendur. 

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"     
  
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð


Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
64.900.000 kr.684 þ./m²
+48,9% á 5 árum
23. mars 2021Þinglýstur kaupsamningur
43.600.000 kr.459 þ./m²
+131,9% á 4 árum
12. september 2017Fyrsta sala
18.800.000 kr.198 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mýrarland 5

800 Selfoss
64.900.000 kr.684 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2017TegundRað-/parhúsStærð94,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23654101Fasteignamat67.850.000 kr.Brunabótamat53.450.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑