fasteignasölur.is
Eyravegur 48
1 af 30

Um eignina

Trausti fasteignasala og Viktoría Larsen löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega fallega​​​​ ​​​og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 2.hæð að Eyravegi 48, 800 Selfossi. Íbúðin skiptist í forstofu, herbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi. Harðparket á gólfum og flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi. Eignin er í lyftuhúsi með sérinngangi af sameiginlegum svölum.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 71,9 fm. og þar af er geymsla skráð 6 fm. 

Nánari lýsing.
Forstofa með hurð inn í íbúðarými, fataskápur upp í loft, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft, parket á gólfi. 
Eldhús er opið við stofu með ljósri viðarinnréttingu, parket á gólfi. 
Stofa og eldhús mynda eitt alrými, parket á gólfi. Útgangur er út á suðvestur svalir með útsýni.
Baðherbergi er með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu aðstöðu, flísar á gólfi. 
Þvottahús er innan íbúðar með innangengt frá baðherbergi, skolvaskur og borð, flísar á gólfi. 
Geymsla íbúðar er í sameign á jarðhæð hússins.

Húsið er álklætt að utan með viðarklæðningu að hluta og næg bílastæði eru á lóðinni. Grasfletir eru að aftan og til hliðar. 
Sameiginleg vagna og hjólageymsla í sameign.
Vel skipulögð eign í góðu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
43.900.000 kr.611 þ./m²
+15,5% á 4 árum
30. maí 2022Þinglýstur kaupsamningur
38.000.000 kr.529 þ./m²
+25,8% á 1 ári
6. október 2021Fyrsta sala
30.198.000 kr.420 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eyravegur 48

800 Selfoss
43.900.000 kr.611 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð71,9 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22815991Fasteignamat45.700.000 kr.Brunabótamat43.750.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑