Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir : 2-Svefnherbergja þakíbúð í Los Alcázares
Ný 2 svefnherbergja þakíbúð í íbúðarhverfi við La Serena Golf í Los Alcázares, aðeins300 metra frá Mar Menor. Íbúðin er með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þar af eitt en suite, björtu opnu alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu ásamt rúmgóðri verönd ogstórri þakverönd með útisturtu. Möguleiki er á að bæta við sumar-eldhúsi og einkajacuzzi.
Íbúðin er hluti af nýju íbúðarhverfi með 66 íbúðum og glæsilegri sameiginlegri aðstöðu. Þar er um 190 m² lónlaga sundlaug, sameiginlegir garðar, Balinese-rúm, spa, líkamsrækt, sauna, barnaleikvöllur og tvær petanque-brautir.
Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi, nútímalegum baðherbergjum, rafdrifnum gluggahlerum, grunnlýsingu og fulluppsettri loftræstingu. Neðanjarðarbílastæði fylgir, auk sameiginlegrar hjólastæðaaðstöðu og möguleika á geymslu.
La Serena Golf er við hlið íbúðarhverfisins og miðbær Los Alcázares er í um 2 km fjarlægð. Þar er að finna veitingastaði, verslanir, kaffihús, íþróttaaðstöðu og fallega strandgönguleið. Cartagena er í um 22 km fjarlægð og Murcia International-flugvöllur í um 30 km.
Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja vera nálægt bæði golfvelli og strönd, með góðri sameiginlegri aðstöðu og stórri einka þakverönd.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/6917/2-svefnherbergja-thakibud-i-los-alcazares/
REF: NB-87561
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.comeða sendu okkur línu á info@perlainvest.com. Allar upplýsingar eru veitar í síma8933911 eða0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - 2-Svefnherbergja þakíbúð í Los Alcázares
Allar 37 myndir
Upp ↑



































