Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir : 2-Svefnherbergja íbúð í Norður Costa Blanca
Ný og nútímaleg2 svefnherbergja íbúðí glæsilegu íbúðarhverfi í á Norður Costa Blanca. Íbúðin er í fallegu og rólegu umhverfi, nálægt allri helstu þjónustu og aðeins um4 km frá ströndum El Albir og Altea.
Íbúðin er með björtu og opnu alrými þar sem eldhús og stofa tengjast saman, stórum gluggum og rúmgóðri verönd sem snýr í suður. Íbúðirnar eru hannaðar með áherslu á náttúrulega birtu og þægilegt skipulag.
Íbúðarhverfið samanstendur af 123 nýjum íbúðum með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum. Hægt er að velja á milli íbúða á jarðhæð með einkagarði, íbúða á efri hæðum með stórum veröndum og þakíbúða með einkasólverönd.
Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi með kvarsborðplötum og góðu skápaplássi, tvöföldu gleri, rafdrifnum gluggahlerum í svefnherbergjum, öryggishurð og fulluppsettri loftræstingu. Bílastæði fylgir íbúðinni, annað hvort í kjallara eða á bílastæði við húsið.
Í lokuðu íbúðarhverfinu eru tvær sameiginlegar sundlaugar með strandinngangi, fallegir sameiginlegir garðar, lyftur og móttaka eða þjónustuaðstaða.
Miðbær Alfaz del Pi er í um 1,5 km fjarlægð þar sem finna má verslanir, veitingastaði og alla helstu þjónustu. Í nágrenninu er einnig íþróttaaðstaða með tennis, padel, körfubolta og líkamsrækt.
Frábær 2 svefnherbergja íbúð á góðum stað fyrir þá sem vilja njóta nútímalegs lífsstíls á Costa Blanca, nálægt bæði náttúru og ströndum.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7675/2-svefnherbergja-ibud-i-nordur-costa-blanca/
REF: NB-95242
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.comeða sendu okkur línu á info@perlainvest.com. Allar upplýsingar eru veitar í síma8933911 eða0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - 2-Svefnherbergja íbúð í Norður Costa Blanca
Allar 20 myndir
Upp ↑


















