1 af 7
Um eignina
Betri stofan fasteignasala kynnir vel staðsett 1962,1 fm. iðnaðarhúsnæði við Malarhöfða 8 í Reykjavík. Lóðin er skráð sem iðnaðar og athafnalóð og er stærð hennar 3174 fm.
Eignin er staðsett innan Ártúnshöfða-Elliðaárvogs, sem er stærsta þróunarsvæði Reykjavíkur fyrir blandaða byggð íbúða og þjónustu. Rammaskipulag fyrir svæðið var staðfest árið 2017 og í framhaldi verið unnið að deiliskipulagi fyrir minni áfanga á svæðinu. Deiliskipulagssvæðið er austan við ósa Elliðaáa. Malarhöfðinn, sem er hluti af Ártúnshöfða, er eins konar háslétta og einkennist af miklum landhalla frá Bíldshöfða niður til norðurs í átt að framtíðarlegu Borgarlínu. Frekari upplýsingar um stöðu skipulagsvinnunnar á svæðinu má nálgast hér https://skipulagsgatt.is/issues/2024/486.
Nánari lýsing:
Heildarstærð eignarinnar er 1962,1 fm. en tvær fasteignir standa á lóðinni, annars vegar í 1662,2 fm. iðnaðar- og verslunarhúsnæði, og hins vegar í 300 fm. vörugeymslu. Heildareignin er í dag nýtt undir rekstur Blikksmiðsins hf., en hún verður laus til afhendingar síðar á þessu ári.
Eignin stendur á góðum stað, með góðri aðkomu og getur hentað undir ýmiskonar starfsemi í dag
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Frekari upplýsingar veitir Sverrir Pálmason, lögmaður og lgf., í síma 867-1001 (sverrir@betristofan.is).

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Malarhöfði 8
110 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1992TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1962,1 m²Herbergi8FasteignanúmerF204297213Fasteignamat521.250.000 kr.Brunabótamat745.600.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 7 myndir
Upp ↑