fasteignasölur.is
Lækjargata 12
1 af 76

Um eignina

Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs kynna : 
Einstök perla í hjarta Hafnarfjarðar
Einbýlishúsið Þórsmörk, Lækjargata 12, er virðulegt steinsteypt hús sem stendur á skjólgóðum stað við Lækinn, í göngufæri við alla þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar. Húsið var byggt 1927 og hefur verið gert upp af virðingu við uppruna þess og sögu. Gengið er út af aðalhæð hússins í ævintýralegan garð umluktan steinsteyptum veggjum, með stórum trjám, fallegum grjóthleðslum og fjölbreyttum fjölærum gróðri. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


NÁNARI LÝSING : 
Mið hæð :
komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þaðan er komið inn í rúmgott hol með náttúruflísum á gólfi. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með fiskabeina parketi á gólfi. Mjög fallegir kverklistar og rósettur í loftum. Gluggar á þrjá vegu. Eldhúsið var endurnýjað fyrir um 20 árum og er innréttingin sérsmíðuð úr gegnheilum viði og með miklu skápaplássi, eyju og stórri gaseldavél. Borðplötur eru úr gegnheilu mahagony. Náttúrusteinn er á gólfi og veggflísar milli skápa eru skreyttar af listakonunni Rúnu.  Opið er inn í borðstofu frá eldhúsi.
Efri Hæð : 
Frá holi miðhæðar er rúmgóður stigi upp á efri hæðina. Komið er upp á gang með parketi á gólfi, við enda gangsins er útgengt út á litlar svalir sem snúa út að læknum. Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket á gólfi. Annað rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa og fallegu standandi pottjárns baðkari, flísar á gólfi og veggjum. Gott þvottahús með dúk á gólfi. Innbyggður geymsluskápur undir stiga.
Efsta hæð : 
Frá holi miðhæðar er stigi upp á rishæðina. Komið er upp í rúmgott sjónvarpshol með gluggum á tvo vegu. Möguleiki á að útbúa gott svefnherbergi. Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi. Annað minna herbergi með parketi á gólfi.
Kjallari : 
Frá holi miðhæðar er steyptur stigi niður í kjallarann. Komið er í rúmgott hol með skápum. Mjög rúmgott herbergi/stofa með parketi á gólfi. Innaf því er annað rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa, flísar á gólfi. Mjög rúmgóð geymsla er inn af holi.
Annað :
Allir gluggar nema tveit litlir háaloftsgluggar, hafa verið endurnýjaðir, en þeir eru handsmíðaðir eftir upprunalegum teikningum. Einnig hafa frárennslislagnir verið endurnýjaðar og dren lagnir einnig. 

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Lækjargata 12

220 Hafnarfjörður
Tilboð
Einbýlishús6 svefn · 2 bað
Byggingarár1927TegundEinbýlishúsStærð258,9 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF20776298Fasteignamat145.700.000 kr.Brunabótamat114.200.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 76 myndir

Upp ↑