fasteignasölur.is
Hrísrimi 11
1 af 23

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Vel skipulögð 65,0fm tveggja herbergja enda íbúð á jarðhæð í mjög snyrtilegu fjölbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsignar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is.

NÁNARI LÝSING : 

Komið er inn í forstofu með fatahengi, parket á gólfi. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með fallegum hornglugga, parket á gólfi, útgengt út á hellulagða verönd. Eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur, flísar á gólfi. Svefnherbergi með skáp, dúkur á gólfi. Baðherbergi með sturtu, innrétting við vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. Í kjallara er sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og var málað að utan 2016 og virðist vera í góðu ástandi. Skipt var um bílskúrshurð í nóvember 2021. Farið var í viðgerð á gluggum og þakinu sumarið 2021.

Grunnskóli og leikskóli í göngufæri og göngustígar liggja um allt hverfið. Stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu og afþreyingu í Spönginni og Egilshöll. 

Nánari upplýsignar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is.
 

Hrísrimi 11

112 Reykjavík
53.900.000 kr.829 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1991TegundFjölbýlishúsStærð65 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20400484Fasteignamat51.500.000 kr.Brunabótamat41.000.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑