fasteignasölur.is
Sjafnarvellir 15
1 af 46

Um eignina

Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgott 182fm parhús innarlega í botnlangagötu við Sjafnarvelli 15 í Keflavík. Stutt er bæði í leik- og grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Húsið hefur verönd bæði fyrir framan hús og aftan ásamt heitum og köldum potti. 

* Þakjárn endurnýjað - 2024
* Nýr þakpappi og flasningar á bílskúrsþaki - 2026
* Nýtt harðparket á neðri hæð - 2022
* Ný borðplata og helluborð í eldhúsi - 2022
* Nýr pallur í bakgarði, heitur og kaldur pottur - 2022
* Flestir rafmagnstenglar og ljósrofar endurnýjaðir - 2025
* Pallur málaður að framan - 2025
* Þarf að skipta um 2-3 glugga í eigninni en allir gluggar og útihurðir á jarðhæð voru málaðir 2025.

 
Lýsing neðri hæðar:
Forstofa
: Vatnsþolið harðparket á gólfi, rúmgóður forstofuskápur. 
Eldhús: Upprunaleg innrétting sem var nýlega máluð, borðplötu og helluborði var skipt út árið 2022. Ný uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni.
Stofa/borðstofa: Bjart opið rými með harðparketi á gólfi, innfelldri led-lýsingu og gólfsíðum gluggum. Frá stofu er gengið út á verönd.
Sjónvarpshol: Harðparket á gólfi og stigi upp á aðra hæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi á gólfi, góður fataskápur. 
Baðherbergi: Endurgert í mars 2026. Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, baðkar og upphengt salerni. 
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. 
Innangengt er í bílskúr.
Bílskúr er með flísum á gólfi og bílskúrshurð með rafmagnsopnara ásamt eins fasa hleðslustöð. Gengið er í þvottahús úr bílskúr.
Þvottahús: Flísar á gólfi, vaskur og mikið skápapláss. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í innréttingu. Gengið er út á baklóð úr þvottahúsi. 
 
Nánari lýsing efri hæðar:
Salerni: Flísar á gólfi, innrétting með handlaug, salerni og sturta. 
Herbergi: Með parketi á gólfi og skáp undir súð.
Herbergi: Með parketi á gólfi og skáp ásamt innangengri geymslu undir súð. 
Skápar með miklu geymsluplássi undir súð. 
 
Stór og góður bakgarður, 14,9m2 kofi er á baklóð frá Kofar og hús, rafmagn er í geymsluskúr. Steyptar súlur undir, 6 tommu þykkar yleiningar og pallur. 
Pallur var stækkaður árið 2022 og settur heitur og kaldur pottur. Einnig eru lagnir til staðar fyrir útisturtu eða vatn fyrir sturtu/sauna í útiskúr.
Innkeyrsla við bílskúr og gangstétt er upphituð með frárennsli hússins.
 
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
brynjar@studlaberg.is

 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
99.900.000 kr.547 þ./m²
+37,8% á 5 árum
10. mars 2022Þinglýstur kaupsamningur
72.500.000 kr.397 þ./m²
+64,8% á 5 árum
3. ágúst 2017Fyrsta sala
44.000.000 kr.241 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sjafnarvellir 15

230 Reykjanesbær
99.900.000 kr.547 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2001TegundRað-/parhúsStærð182,7 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22414078Fasteignamat98.650.000 kr.Brunabótamat91.500.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑