fasteignasölur.is
Hjarðarhagi 36
1 af 21

Um eignina

LANDMARK  fasteignamiðlun, Monika Hjálmtýsdóttir og Sigurður Samúelsson, lögg. fasteignasalar kynna: Fallega þriggja herbergja 82,8 fm íbúð í kjallara að Hjarðarhaga 36 í Reykjavík. 

**Bókið skoðun hjá monika@landmark.is eða í síma: 823-2800 og hjá ss@landmark.is eða í síma 896-2312**

Nýtt parket er á stofu.  Íbúðin var mikið endurnýjuð veturinn 2010-2011, skipt var um flestar lagnir, gólf endurnýjað og flotað, settar nýjar innréttingar, hurðir og gólfefni. Þá voru milliveggir endurnýjaðir og hurðir. Frárennslislagnir og lagnir endurnýjað árið 2011 og frárennsli út í götu árið 2013. Árið 2013 voru þak og þakrennur í fjölbýlishúsinu endurnýjaðar og sett dren. Allar raflagnir voru endurnýjaðar árið 2011 og skipt um aðaltöflu árið 2015.

Anddyri og gangur er með parketi á gólfi. 
Stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. 
Svefnherbergi I er með fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi II er rúmgott með hornglugga, stórum fataskáp, parket á gólfi. 
Eldhús er með eikar innréttingu með góðu skápaplássi, bakarofni, helluborði og gufugleypi yfir. Hægt er að koma fyrir tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. Borðkrókur í eldhúsi. 
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara með sér tengi fyrir þvottavél. 
Sérgeymsla fylgir eigninni, staðsett undir stiga sem ekki telst í heildarfermetrum þar sem lofthæð er innan við 1,8m. 

Bílskúr merkt 050101, 24 fm að stærð er sameign allra í Hjarðarhaga 36-42 og er notaður sem hjólageymsla. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali monika@landmark.is sími 823-2800
Sigurður Samúelsson, lögg. fasteignasali ss@landmark.is sími 896-2312


Láttu okkur selja fyrir þig. Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Hjarðarhagi 36

107 Reykjavík
69.900.000 kr.844 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1956TegundFjölbýlishúsStærð82,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20283402Fasteignamat70.050.000 kr.Brunabótamat40.700.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑