fasteignasölur.is
Völvufell 24
1 af 77

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu 202,2fm. endaraðhús með bílskúr við Völvufell 24.

Raðhúsið skiptist uppí 134,8fm. hæð, 43,9fm. kjallara sem hefur verið í útleigu og 23,5fm bílskúr.

Aðalíbúðin skiptist í anddyri, stofa/borðstofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Neðri hæðin er með miðrými, svefnherbergi, salerni og baðherbergi.


Nánari lýsing 1. hæðin
Snyrtileg aðkoma að húsinu, hiti í stétt.
Anddyri
er með flísum á gólfi og skáp í anddyri.  Úr anddyrinu er gengið niður í kjallara sem hefur verið í útleigu.
Alrými, borðstofa og stofa er með harðparket á gólfi, búið er að taka niður loftin og setja innfellda lýsingu í loftið.  Útgengt út í afgirtan suðurgarð úr stofunni.
Eldhús var allt endurnýjað 2023/2024, eldhúsinnrétting með stein, mikið og gott skápapláss.  Nýleg tæki s.s. ofn og örbylgjuofn/ofn í vinnuhæð, stórt helluborð, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.
Hjónaherbergi með harðparket á gólfi og nýlegum tvöföldum fataskáp.
Þrjú barnaherbergi með harðparket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi var uppfært 2023, Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, stór spegill yfir innréttingunni, baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með flísum á gólfi,  góðri innréttingu, skápum, borðplötu og vask.

Neðri hæðin
Komið er níður í alrými þar sem eru flísar á gólfi. Búið er að setja upp snyrtilega eldhúsinnréttingu.  Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa.  Sér salerni með flísum á gólfi.  Rúmgott herbergi sem nýtt er sem svefnherbergi.  Rýmið niðri er gluggalaust en búið er að koma fyrir góðri loftræstingu með út og innsogi.

Bílskúr
Bílskúrinn er 23,5fm. með flísum á gólfi.  Bílskúrshurðaopnari.  Gluggi í enda bílskúrsins.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð bæði að innan og lóðin hefur verið löguð mikið.
Nýlegt eldhús, baðherbergi, gólfefni, nýleg rafmagnstafla og dregið í nýtt rafmagn. 

Þak var yfirfarið og skipt um járn og rennur árið 2009

Opna söluyfirlit fyrir eignina hér.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími: 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
125.900.000 kr.623 þ./m²
+57,4% á 5 árum
20. desember 2021Fyrsta sala
80.000.000 kr.396 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Völvufell 24

111 Reykjavík
125.900.000 kr.623 þ./m²
Rað-/parhús5 svefn · 3 bað
Byggingarár1972TegundRað-/parhúsStærð202,2 m²Herbergi7InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20523347Fasteignamat100.400.000 kr.Brunabótamat94.190.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 77 myndir

Upp ↑