fasteignasölur.is
Ásgarður  26
1 af 148

Um eignina

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Ásgarð 26, 108 Reykjavík:

Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsett endaraðhús á þremur hæðum á frábærum stað í Fossvoginum. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 132,2 fm. Eignin er mikið endurnýjuð að innan sem utan. Gott aðgengi er að húsinu og sér bílastæði fyrir framan eignina og sameiginleg stæði á austurhlið hússins. Stutt er í grunn- og leikskóla og ýmsa alhliða þjónustu.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar:
Fyrsta hæð: Anddyri, stigagangur, stofa / borðstofa, eldhús og gestasalerni. 
Önnur hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og geymsla (skápur). 
Kjallari: Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús, anddyri og stigagangur. Garðhýsi ca. 9 fm á lóð fylgir þessari íbúð. 

Nánari lýsing: 
Fyrsta hæð:

Anddyri: Fatahengi, hvítur veggskápur, flísar á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt, útgengi út á suðursvalir með flísum, parket á gólfi. 
Eldhús: Rúmgott, hvít innrétting og laus eyja með skúffum, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð, flísar á vegg, borðkrókur, parket á gólfi. 
Gestasalerni: Endurnýjað 2020. Inn af forstofu, hvít innrétting með skúffum, upphengt salerni, gólfhiti, flísar á gólfi og salerniskassa. 
Stigagangur: Stigi upp á efri hæð, ullarteppi á gólfi. 

Önnur hæð: 
Hjónaherbergi: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott, fataskápur, korkur á gólfi. 
Baðherbergi: Endurnýjað 2020. Fallega innréttað baðherbergi, hvít innrétting og speglaskápar, innbyggður skápur ofan við salerni, walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, gólfhiti, fallegar flísar á veggjum og gólfi. 
Gangur: Komið er upp í teppalagðan gang, geymsluskápur í enda gangsins. 

Í kjallara: 
Sérgeymsla: 8,1 sérgeymsla (merkt 0002), málað gólf.

Sameign í kjallara:
Anddyri: Flísar á gólfi. 
Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi. 
Stigagangur: Stigi upp í íbúð á fyrstu hæð, ullarteppi á gólf. 

Húsið: Ásgarður 26-32 er steinsteypt hús sem byggt er 1960.  Gólfhiti er á salerni á fyrstu hæð og baðherbergi á annarri hæð og einnig í sameiginlegu anddyri og þvottahúsi í kjallara. Innanhúss arkitektinn Guðrún Atladóttir hefur teiknað flestar breytingar sem gerðar hafa verið á eigninni.  
Lóð: Sameiginleg lóð fyrir báðar íbúðirnar á baklóð framan við Ásgarð 26.
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignirnar mikið að innan sem utan s.s:
* 2022-2023 Útveggir viðgerðir og steinaðir. 
* 2022-2023 Nýir gluggar og gler.
* 2022-2023 Nýjar svalahurðir.
* 2019-2020 Nýtt skólp (Undir húsi og út í garð).
* 2019-2020 Nýjar neysluvatnslagnir.
* 2020 Gólfhiti í salerni og baðherbergi, sameiginlegu anddyri og þvottahúsi í kjallara. 
* 2020 Baðherbergi og salerni endurnýjuð í hólf og gólf.
* 2020 Ný ullarteppi á stiga og gang á annarri hæð. Nýtt ullarteppi á stiga niður í kjallara. 
* 2020 Nýjar innihurðar (Ekki í geymslu).
* 2017 Vesturgafl klæddur.
* 2016 Skipt um járn á þaki.
* 2016 Viðgerð á útitröppum / endursteyptar.
* 2014 Austurgafl klæddur.
* 2013 Ný útihurð á fyrstu hæð.
* 2004 Fyrsta hæð mikið endurnýjuð, nýtt gegnheilt hickory parket og ný eldhúsinnrétting, nýjar flísar á veggjum.
* Rafmagn mjög mikið endurnýjað samhliða öðrum framkvæmdum.

Virkilega fallegar og mikið endurnýjaðar eignir miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. 

Eignin í kjallara er einnig á sölu og hér er vefslóðin á hana: Vefslóð á eignina: Smellið hér.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Ásgarður 26

108 Reykjavík
124.500.000 kr.942 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1960TegundRað-/parhúsStærð132,2 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20362181Fasteignamat93.800.000 kr.Brunabótamat78.000.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 148 myndir

Upp ↑