1 af 24
Um eignina
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Langahlíð 5 C
Vel skipulögð þriggja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á vinsælum stað í Glerárhverfi. Góð bílastæði eru fyrir framan eignina og góður garður og pallur til suðvesturs. Birt stærð eignarinnar er skráð samkvæmt HMS 82 fm. Í suðurenda eru sérgeymslur og á íbúðin 12,5% af þeim. Sérgeymslan er því nálægt 7 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, gang, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og þvottahús.
Forstofa er með flísar á gólfi og lausum fataskáp sem getur fylgt með.
Borðstofa og stofa eru í opnu rými með parket á gólfi og stórum glugga til suðvesturs.
Á gangi er parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting í kringum vask, sturta með glerskilrúmi og opnanlegt fag er á baðinu.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og í stærra herberginu eru skápar auk þess sem þaðan er útgengt út á verönd.
Eldhús er með parket á gólfi, upprunalegri eldhúsinnréttingu sem hefur verið lagfærð auk eldhúskróks.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar er hiti í gólfi og annar inngangur.
Geymsla í sameign er við austurenda raðhússins.
Birt stærð eignarinnar er skráð samkvæmt HMS 82 fm. Í suðurenda eru sérgeymslur og á íbúðin 12,5% af því rými. Sérgeymslan er því nálægt 7 fm.
Annað:
Árið 2014 var farið í eftirfarandi endurbætur:
-Ofnalagnir endurnýjaðar og lagðar í gólf
-Gólfefni íbúðar fyrir utan þvottahús sem var endurnýjað 2022
-Baðherbergi endurnýjað og settur hiti í gólf
-Rafmagnstafla, tenglar og rofar ásamt vírum víðast hvar
-Innihurðir endurnýjaðar
-Skipt um útidyrahurðir 2016
-Skipt um loftaklæðningu og einangrun í herbergjum og þvottahúsi 2022-2025
-Dúkur á þaki endurnýjaður að minnsta kosti fyrir um 15 árum
-Ljósleiðari tengdur
-Frábær staðsetning, stutt í leik og grunnskóla ásamt heilsugæslu og fl.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Langahlíð 5 C
603 Akureyri (utan Glerár)
59.900.000 kr.730 þ./m²
Rað-/parhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1969TegundRað-/parhúsStærð82 m²Herbergi3InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF21485413Fasteignamat53.950.000 kr.Brunabótamat49.120.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 24 myndir
Upp ↑






















