fasteignasölur.is
Brautarholt 20
1 af 24

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Bjarta, vandaða og vel skipulagða stúíóíbúð á annarri hæð í uppgerðu lyftuhúsi í grennd við miðbæ Reykjavíkur við Brautarholt 20. Eignin er skráð 36,6 fermetrar, þar af er geymsla 6,5 fermetrar. Íbúðin er með aukinni lofthæð og stórum gluggum sem gerir eignina sérlega bjarta. Svalir snúa í austur. Búið er að útbúa snyrtilegt svefnloft sem eykur rými íbúðarinnar til muna, svefnloftið er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar. Vínilparket á gólfi. Svalir snúa í austur. Í sameiginlegum lokuðum garði er að finna veglega sameign með fundar-/veislusal, fullbúnu þvottahúsi og hjóla-/vagnageymslu. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og sólríkur.

Nánari lýsing:
Eldhús: Falleg innrétting frá HTH með innbyggðri uppþvottavél og ískáp, hellurborði ásamt bakaraofni með innbyggðum örbylgjuofni. 
Baðherbergi: Snyrtilegt með góðri innréttingu frá HTH, sturtu og opnanlegum glugga. Flísalagt með vönduðum ítölskum flísum. 
Sameign: Samkomusalur, fullbúið þvottahús og vagna/hjólageymsla ásamt fallegu útisvæði. Lyfta er í húsinu.  

Vel hefur verið hugað að húsinu að utan en það er á mjög snyrtilegan hátt. Við endurgerð hússins var leitast við að halda klassískum sjarma um leið og vistaverur eru hannaðar með umhverfi og nútímalífsstíl að leiðarljósi. 


Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað í jaðri miðborgarinnar rétt ofan við Hlemm. 


Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
45.000.000 kr.1230 þ./m²
+11,9% á 2 árum
9. ágúst 2024Þinglýstur kaupsamningur
40.200.000 kr.1098 þ./m²
+23,7% á 2 árum
28. júní 2022Fyrsta sala
32.500.000 kr.888 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brautarholt 20

105 Reykjavík
45.000.000 kr.1.230 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1953TegundFjölbýlishúsStærð36,6 m²Herbergi1FasteignanúmerF25189257Fasteignamat40.250.000 kr.Brunabótamat25.200.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑