fasteignasölur.is
Hörðukór 3
Opið hús 13. sept. kl. 13:30–14:00
1 af 76

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Fallega, bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á besta stað í Kórahverfinu í Kópavogi. Íbúðin er á sjöttu hæð í lyftuhúsi og er laus við kaupsamning. Eignin er skráð 116 fm. Komið er inn í forstofu og í framhaldi af henni er rúmgott og bjart stofurými með eldhúsi. Úr stofunni er útgengt út á svalir með útsýni yfir Elliðavatn. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Þvottahús er sér í íbúðinni og sérgeymsla í kjallara.
Frábært útsýni yfir Elliðavatn, opið bjart alrými, þrjú svefnherbergi og sér þvottahús.


Sjá hér myndband af eigninni

Nánari lýsing á eigninni:
Forstofa með rúmgóðum skápum. Parket er á gólfum í alrými.
Stofa og borðstofa kemur í framhaldi af forstofunni og mynda saman bjart og fallegt rými með útgengi út á stórar svalir með útsýni.
Eldhúsið er í sama rými og stofan. Það er með hvítri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi og tækjum.
Hjónaherbergi er á gangi ásamt öðru barnaherbergjanna, það er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi I er við hlið hjónaherbergis og er með fataskápum.
Barnaherbergi II er inn af stofu með góðu útsýni og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og er með bæði sturtuklefa og sér baðkari með sturtuhaus. Fín innrétting og spegill með ljósi.
Þvottahús er flísalagt með borðplötu og vaski.
Í sameign sem er snyrtileg er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  Fjöldi bílastæða er við húsið.

Göngufæri er í bæði leik- og grunnskóla, íþróttamiðstöðin Kórinn, matvöruverslun og apótek. Þar að auki er stutt í útivistarsvæði við Elliðaárvatn.
Þetta er rúmgóð og vel skipulögð útsýnisíbúð sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:
Aron Bjarnason aðstm. fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti á aron@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða með tölvupósti á atli@betristofan.is 

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
84.900.000 kr.732 þ./m²
+39,4% á 5 árum
14. júlí 2021Þinglýstur kaupsamningur
60.900.000 kr.525 þ./m²
+34,3% á 1 ári
16. apríl 2020Þinglýstur kaupsamningur
45.350.000 kr.391 þ./m²
+3,3% á 3 árum
7. júlí 2017Þinglýstur kaupsamningur
43.900.000 kr.378 þ./m²
+57,3% á 4 árum
28. ágúst 2013Þinglýstur kaupsamningur
27.900.000 kr.241 þ./m²
+11,6% á 5 árum
18. ágúst 2008Fyrsta sala
25.000.000 kr.216 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hörðukór 3

203 Kópavogur
84.900.000 kr.732 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2007TegundFjölbýlishúsStærð116 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF22852504Fasteignamat81.350.000 kr.Brunabótamat58.900.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 76 myndir

Upp ↑