1 af 6
Um eignina
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
FRÓN fasteignamiðlun kynnir eignina Njörvasund 16, 104 Reykjavík.Eign er í örlítið niðurgröfnum kjallara, fastanúmer F2020623. Kynnum hana ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Einstaklega yndislegt að koma í þessa götu. Þess má geta að fyrrverandi eigendur miðhæðar höfðu áður búið á jarðhæðinni. Það hlýtur að segja sitt um þetta hús.Snotur eign í þríbýli sem var byggt 1959 en hefur verið vel við haldið og er í góðu standi. Einstaklega góðir grannar á mið- og efstu hæð. Sem og í Njörvasundinu.
Íbúðin er skráð 71,8 fm.
Afhending er samkvæmt samkomulag.
Eignin:
Veggir hússins eru nýuppgerðir að utan. Húsið er ný sprungufyllt og málað. Þak er gott. Allar lagnir í húsinu eru í góðu standi. Nýir plastgluggar eru í þessari íbúð. Öll lóðin er einstaklega falleg og friðsæl með trjám og grasi.
Sérinngangur í forstofu sem er mjög snyrtileg og gólfið flísalagt. Lítil geymsla er við innganginn í forstofuna sem notuð er fyrir sláttuvél og garðáhöld fyrir húsið. Úr forstofu er stigi upp á miðhæð. Úr forstofunni er líka inngangur í sameiginlegt þvottahús þar sem er líka ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir. Í forstofunni er lítil geymsla fyrir íbúðina.
Þegar komið er inn er gengið inná lítinn gang og af honum beint inn í eldhúsið sem er opið. Veggur með lúgugati tengir eldhúsið við stofuna. Allt rými er einstaklega vel nýtt í íbúðinni. Hún er hlýleg og björt.
Stofan er opin fram í ganginn. Af gangi er gengið inn í svefnherbergin tvö. Hurðir í svefnherbergin tvö og baðherbergi eru gamlar en líta vel út.
Í eldhúsi er gömul inntétting sem lítur vel út miðað við aldur. Eldhúsborðið var nýlega lagt með epoxy á plötuna. Eldavél og bakarofn eru nýleg tæki.
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar en flísar í baðherbergi. Parketið er aðeins upphleypt í eldhúsi og nokkrar smáskellur í því þar. Annars lítur parketið vel út.
Á baðherbergi er ný innrétting og hreinlætistæki. Nýr sturtuklefi. Nýr handklæðaofn. Klósett er það eina sem ekki hefur verið endurnýjað á baðherbergi. Klósettið er upphengt og lítur mjög vel út. Lítill skápur með spegli er ofan við vaskinn.
Öll íbúðin er nýmáluð í hólf og gólf.
Gólfhiti er í allri íbúðinni. LED-ljós eru í íbúðinni.
Góð svefnherbergi með mjög góðum fataskápum.
Grunnskól og leikskóli eru í göngufæri. Örfáar mínútur í leikskóla og um 10 til 15 mínútur að ganga í grunnskóann.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Árni Halldórsson, lögg. fasteigna- og skipasali í síma 618-7272, tölvupóstur: olafur@fron.is - BÓKIÐ EINKASKOÐUN - Get farið með ykkur hvenær sem ykkur hentar -
BÓKIÐ SKOÐUN***********BOOK A VIEWING********UMÓW WIZYTE
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · FRÓN fasteignamiðlun
71.700.000 kr.999 þ./m²
+96,4% á 8 árum
20. ágúst 2018Þinglýstur kaupsamningur
36.500.000 kr.508 þ./m²
+7,4% á 1 ári
17. nóvember 2017Þinglýstur kaupsamningur
34.000.000 kr.474 þ./m²
+195,7% á 11 árum
12. mars 2007Fyrsta sala
11.500.000 kr.160 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Njörvasund 16
104 Reykjavík
71.700.000 kr.999 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1959TegundFjölbýlishúsStærð71,8 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20206232Fasteignamat57.450.000 kr.Brunabótamat41.600.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 6 myndir
Upp ↑




