fasteignasölur.is
Kársnesbraut 92
1 af 50

Um eignina

VALBORG fasteignasala kynnir: Heildarhúseignin við Kársnesbraut 92, 200 Kópavogi. Um er að ræða einbýlishús sem er neðri hæð, hæð og bílskúr. Tveir inngangar eru í húsið. Húsið er klætt og einangrað að utan. Heildareignin er skráð samtals 264 fm.

Nánari upplýsingar veitir Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 821 2412, tölvupóstur borga@valborgfs.is

Eignin Kársnesbraut 92 er skráð sem hér segir hjá HMS:
Neðri hæð, birt stærð 91 fm. 
Hæð, birt stærð 132 fm. 
Bílskúr, birt stærð 41 fm. 
 
Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa með parketgólfi.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og flísar upp á vegg, frítt standandi baðkar, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af baðherbergi er hitakompa.
Eldhús er opið, innrétting, flísar á gólfi.
Borðstofa, útgengt á pall og þaðan út í garð. Á gólfi er sisal teppi.
Herbergi, rúmgott með parketgólfi.
Stigi í holi á milli hæða, sisal teppi á gólfi/þrepum.
 
Efri hæð:
Forstofa
með parket á gólfi.
Stofa stór og björt með útsýni á tvo vegu. Parket á gólfi.
Herbergi I, flísar á gólfi.
Herbergi II, með fataskápum. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi, rúmgott, parket á gólfi.
Fataherbergi, rúmgott, parket á gólfi. Mögulegt að breyta í herbergi.
Baðherbergi, er með flísalagt gólf, veggi og loft, baðkar og blöndunartæki fyrir sturtu.
 
Bílskúr, 41 fm. Rafdrifin bílskúrshurð. Gluggar á tvo vegu. Bílskúrinn hefur verið nýttur sem íbúðarhluti. Gólf lakkað.
 
Lóð er tyrft og með töluverðum trjágróðri. Stærð lóðar 902 fm.
 
Að sögn seljanda voru eftirfarandi framkvæmdir sumarið 2025:
- tvöfaldur þakpappi heilbræddur ofan á 8 mm þakkrossvið.
- þakrennur settar utan á.
- rennur sitt hvoru megin við húsið endurnýjaðar.
 
Staðsetning eignarinnar er á grónum og eftirsóttum stað í vesturbæ Kópavogar.

Mögulegt að nýta eignina sem tvær íbúðir.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Valborg - fast. og ráðgj. ehf.
175.000.000 kr.663 þ./m²
+231,4% á 14 árum
1. mars 2013Þinglýstur kaupsamningur
52.800.000 kr.200 þ./m²
+13,5% á 6 árum
27. desember 2006Fyrsta sala
46.500.000 kr.176 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kársnesbraut 92

200 Kópavogur
175.000.000 kr.663 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1968TegundEinbýlishúsStærð264 m²Herbergi9InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF206307913Fasteignamat164.800.000 kr.Brunabótamat118.600.000 kr.
Skráð hjá
Valborg - fast. og ráðgj. ehf.
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑