fasteignasölur.is
Lækjargata 28 SELD
1 af 23

Um eignina

**** Eignin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð í góðu lyftufjölbýli miðsvæðis í Hafnarfirði að Lækjargötu 28. Nýlegt parket á íbúðinni og nýlega búið að mála húsið að utan.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð 79,7 fm og þar af er geymsla skráð 6,8 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa
er rúmgóð með flísar á gólfi og gólhita með góðan yfirhafnaskáp.
Alrými er gott með eldhús, stofu/borðstofu með parket á gólfi. Útgengt á mjög rúmgóðar svalir með svalalokun.
Eldhús með góðri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og baðkar með sturtu. Gólfhiti á baðherbergi.
Þvottahús við forstofu með flísar á gólfi, skolvask og góðar hillur og nýtist einnig sem búr.

Sérgeymsla íbúðar í sameign við hjóla- og vagnageymslu.
Næg bílastæði báðu megin hússins.

Frábær staðsetning við Lækinn og hjarta og miðbær Hafnarfjarðar í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla helstu þjónustu. Fallegt útsýni af svölum upp Hamarinn og á Lækinn.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.500.000 kr.872 þ./m²
+141,3% á 11 árum
6. nóvember 2015Þinglýstur kaupsamningur
28.800.000 kr.361 þ./m²
+25,2% á 4 árum
8. júlí 2011Fyrsta sala
23.000.000 kr.289 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lækjargata 28 SELD

220 Hafnarfjörður
69.500.000 kr.872 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2005TegundFjölbýlishúsStærð79,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF22799821Fasteignamat63.750.000 kr.Brunabótamat46.750.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑