fasteignasölur.is
Frostafold 38
1 af 29

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: 2ja herbergja íbúð á efstu hæð við Frostafold 38. 
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/þvottahús og suðursvalir.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 64,1 fm.

Forstofa/hol: Góð flísalögð forstofa/hol með góðum fataskáp.
Íbúðin er á 3.hæð sen er efsta hæðin í húsinu. Gengið upp 2 hæðir. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár, skv. eiganda var húsið málað og skipt um nokkra glugga fyrir 3 árum. 
Inn af holinu er eldhúsið sem er opið í holið, baðherbergið er beint inn af inngangi og svefnherbergið til hægri, stofan er til vinstri við inngang og er hún rúmgóð, beint á móti eldhúsinu er þvottahúsið.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf og falleg innrétting, mjög stór sturta. Upphengt klósett. Opnalegur gluggi er á baðherberginu. 
Svefnherbergi: Herbergið er mjög rúmgott, parketlagt með góðum skápum.
Eldhús: Innrétting með góðu skápaplássi, ísskápur fylgir með, flísar á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt út á rúmgóðar suður svalir.  
Þvottahús/geymsla: Sér innan íbúðarinnar með góðu skápaplássi.
Stór og góður sameiginlegur garður. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Staðsetning og nærumhverfi  Hverfið er rólegt, gróið og fjölskylduvænt og hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaðnum sem og stærri fjölskyldum.
Eign á góðum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttamiðstöð í göngufæri ásamt mörgum leikvöllum í kring.  Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring. 

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
55.900.000 kr.872 þ./m²
+80,3% á 9 árum
10. apríl 2017Þinglýstur kaupsamningur
31.000.000 kr.484 þ./m²
+40,9% á 2 árum
4. júní 2015Fyrsta sala
22.000.000 kr.343 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Frostafold 38

112 Reykjavík
55.900.000 kr.872 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1987TegundFjölbýlishúsStærð64,1 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20418731Fasteignamat52.700.000 kr.Brunabótamat35.350.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑