fasteignasölur.is
Grýta
1 af 26

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Grýta í Grýtubakkahreppi
Skemmtilegt eign á eignarlóð í Grýtubakkhreppi.  Eignin er í dag skráð sem geymsluhúsnæði en skipist þannig að um 70 m² er góð 3ja herbergja íbúð með góðri steyptri verönd og heitum potti, um 150 m² verkstæði/bílskúr - upphitað og einangrað rými og rúmgóð geymsla sem telur um 320 m².  Lóðin er 4.606 m² að stærð.  Eignin er staðsett í skemmtilegu umhverfi, gott útsýni er frá húsinu og stutt er til Grenivíkur og í vetrarparadísina Kaldbak.

Íbúðin var útbúin árin 2017 - 2018 og þá var byggt við húsið til vesturs.
Forstofa er með flísum á gólfi og þar er jafnframt þvottahúsinnrétting og gott skápapláss.
Stofa og eldhús eru í einu opnu rými þar er harðparket á gólfi og ljós snyrtileg innrétting.  Kamína er í stofunni og útgangur á rúmgóða verönd til suðurs með heitum potti.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og þar er ljós innrétting og sturta.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og handklæðaofn.

Verkstæði/bílskúr.
Þessi hluti hússins og einangraður og upphitaður með gólfhita og fóru þær framkvæmdir fram árið 2012.  Rafdrifinn innkeyrsluhurð er á suðurhlið hússins en einnig er innkeyrshurð úr þessum hluta yfir í geymslurýmið.  Ágætar innréttingar eru á verkstæðinu sem og lýsing.  Salerni og geymsla eru í sér rýmum út frá verkstæði, en einnig er innangengt yfir í forstofu íbúðar.  

Geymslan er að stærstum hluta óeinangruð en þó eru í henni þrjár upphitaðar geymslur og tæknirými stúkaðar af.  Innkeyrsluhurð er út úr rýminu til norðurs og gluggar eru til vesturs.

Annað
- Eignin nýtur vatnsréttinda, úr vatnslögn frá borholu í landi Grýtubakka, allt að 100 mínútulítrar, 26 gráðu hiti í opi holunnar  um 18-20 gráðu heitt við húsvegg Grýtu
- Gólfhiti er í íbúð og verkstæði.
- Snjóbræðsla er í verönd.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- 3ja fasa rafmagn er á verkstæði.
- Vindmylla er við húsið og vinnur á 24 voltum.
-  Aukakynding, bjálkaketill er í tæknirými og er hann til að auka hita á kerfi hússins m.a. pottinn.
- Upphitun Hitaveita - Varmadæla loft í vatn 7 W. frá Panasonic.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Grýta

616 Grenivík
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð543,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
75.000.000 kr.138 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2160669Fasteignamat20.724.000 kr.Brunabótamat40.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑