fasteignasölur.is
Hamraborg 26
1 af 19

Um eignina

Kjöreign ehf., fasteignasala, kynnir bjarta og fallega 69,9 fm 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð ásamt 6 fm geymslu á jarðhæð í vel viðhaldinni lyftublokk á frábærum stað í Kópavogi. Innangengt aðgengi að stæði í sameiginlegri bílageymslu. Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu. Einnig er innangengt beint inn úr bílageymslu.
Forstofa/hol: Parketlagt með fataskáp, úr því er gengið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með ljósri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum og hvítum flísum á milli skápa.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými, opið við eldhús. Parketlögð og björt með stórum gluggum, stórbrotnu óhindruðu útsýni til austurs.
Svefnherbergi (hjónaherbergi): Parketlagt með skápum, útgengt á vestursvalir sem snúa út í garð.
Svefnherbergi: Parketlagt án fataskáps.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sér sturtuklefa, upphengt salerni, hvít innrétting og speglaskápum.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á hæðinni, málað gólf og útgengi á rúmgóðar svalir til austurs.
Geymsla: Sér geymsla er á 1. hæð. málað gólf og hillur, einnig er hjóla- og vagnageymsla.
Bílageymsla: Sameiginleg bílageymsla er í kjallara þar sem er aðgengi að stæði í bílageymslu, innangengt úr lyftu. 

Um að ræða vel skipulagða, bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi sem hefur fengið gott viðhald með aðgengi að stæði í bílageymslu á besta stað í Hamrborg. Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Kópavogi með fjölbreyttri verslun og þjónustu í kring og Kópavogslaug í göngufæri. Stutt er út á stofnbraut og í Fossvogsdalinn. Öll skólastig eru í næsta nágrenni; leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli. Í Geislagarði, sem garður á milli blokkana er meðal annars nýlega búið að endurnýja drenkerfi og snjóbræðslu, hellulögn, gróður, leiktæki. 

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is. 
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Kjöreign
58.900.000 kr.843 þ./m²
+194,5% á 13 árum
30. maí 2013Þinglýstur kaupsamningur
20.000.000 kr.286 þ./m²
+19,0% á 2 árum
26. júlí 2011Fyrsta sala
16.800.000 kr.240 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hamraborg 26

200 Kópavogur
58.900.000 kr.843 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1973TegundFjölbýlishúsStærð69,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20613051Fasteignamat56.400.000 kr.Brunabótamat39.550.000 kr.
Skráð hjá
Kjöreign
HeimilisfangÁrmúla 21, 108 ReykjavíkSími533-4040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑