fasteignasölur.is
Háseyla 27
1 af 51

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir  fallegt 208,7 m2  einbýlishús á einni hæð með góðri lofthæð ásamt bílskúr að Háseylu 27 í Njarðvík. Góð staðsetning í innra hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla. Eignin er staðsett í litlum botnlanga. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn skráður 156,9 m2 auk 51,8 m2 bílskúrs. Fasteignamat 2027 verður 106.400.000 kr.

* 2022 voru allir gluggar ( fyrir utan litla efri glugga )  á suðurhlið endurnýjaðir og allar hurðir í húsinu endurnýjaðar.
* 2024 voru settir 10 úti rafmagnstenglar allt í kringum húsið 
* 2025 var baðherbergið endurnýjað frá A-Ö
* 2025 Ný led ljós í alrými með snjallstýringu
* kaldavatsnlagnir endurnýjaðar fyrir nokkrum
árum
* Flestir ofnar hafa verið endurnýjaðir
* Á þaki er litað járn, þakið var yfirfarið og endurskrúfað 2021
* 2026 skipt um dúk á bílskúrsþaki 


Nánari lýsing eignar
Forstofa með náttúruflísum flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasalerni er inn af forstofu með flísalögðu gólfi , salerni og vaskur með spegli fyrir ofan.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er falleg sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötum og stórri eyju með keramik og span helluborði, nýlegur ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa / borðstofa með  parketi á gólfi og útgengi út á timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.
Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi , gert er ráð fyrir arni.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Þar eru upptekin loft,  góður fataskápur og útgengt út á verönd með skjólveggjum til austurs.
Barnaherbergin þrjú eru með parketi á gólfum. Í tveimur þeirra eru upptekin loft og búið að útbúa svefn/leik aðstöðu ofan við hurðina. Í einu herberginu er tröppur niður í herbergi sem var áður hluti af bílskúr.
Baðherbergið er rúmgott og nýlega endurnýjað með flísalögðu gólfi og veggjum, led lýsing í lofti og kverkum, walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi, hvít innrétting með fallegum spegli með fallegri led lýsingu. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Bílskúr með máluðu gólfi. Þar er búið að útbúa þvottaaðstöðu. Geymsluloft er yfir skúrnum að hluta. Innangengt frá barnaherbergi sem tengist bílskúrnum.  

Innkeyrsla og stétt er munsturstimpluð og eru með hitalögn. Teslu rafhleðslustöð fylgir. Garðurinn að framanverðu er hannaður af Stanislas Bohic landslags arkitekt. Góð suðurverönd er við húsið með heitum potti.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
94.900.000 kr.455 þ./m²
+171,1% á 10 árum
15. apríl 2016Fyrsta sala
35.000.000 kr.168 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Háseyla 27

260 Njarðvík
94.900.000 kr.455 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1984TegundEinbýlishúsStærð208,7 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF209338413Fasteignamat106.200.000 kr.Brunabótamat116.400.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 51 myndir

Upp ↑