fasteignasölur.is
Vættaborgir 93
Opið hús í dag kl. 17:00–18:00
1 af 87

Um eignina


OPIÐ HÚS - miðvikudaginn 9. ágúst n.k. milli kl. 17.00 og 18.00 - VERIÐ VELKOMIN !

Fallegt og mjög vel staðsett parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.  Íbúðin skiptist í forstofu, stigahol, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi , gestasnyrtingu, stofur, opið eldhús og innbyggðan bílskúr (innréttað aukaherbergi í bílskúr).


Nánari lýsing:

Á neðri hæð er gengið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn í parketlagt hol.  Frá holi er gengið inn þvottaherbergi sem er flísalagt með glugga og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.  Á neðri hæð eru tvö parketlögð svefnherbergi, annað með góðum skápum.  Þar er einnig baðherbergi með gólfflísum, glugga, hornbaðkari, sturtu og baðskáp við vask. Úr holi liggja svaladyr út í garð. Innangengt er í bílskúr frá þvottaherbergi. Bílskúr er skipt í tvennt og er innri hluti hans aukaherbergi með glugga.  Hitagrind ásamt inntökum og rafmagnstafla er í fremri hluta bílskúrs.

Á efri hæð er stór parketlögð stofa með miklu útsýni og svaladyrum út á stórar svalir. Opið parketlagt eldhús með góðri eldhúsinnréttingu, tengingu fyrir uppþvottavél, Miele bakaraofni, Miele gashelluborði með tengingu í gaskút sem er staðsettur í kassa úti, norðan megin við hús.  Gestasnyrting með glugga, vegghengdu salerni, parketi og veggflísum. Á efri hæð er einnig parketlagt svefnherbergi.
Húsið lítur vel út, var viðgert og málað 2021. Skipt var um ofna 2018. Lóðin er falleg og skjólgóð með litlu garðhúsi norðan megin. Tvö bílastæði með hitalögn eru í innkeyrslu.

Gullfalleg eign innst í götu með fallegu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla og verslana- og þjónustukjarnann Spöngina.  Nágrennið býður upp á mikla möguleika til útivistar, góða göngu- og hjólastíga og stutt er í Gufunes, Hallsteinsgarð og náttúruperluna Geldinganes.

Nánari upplýsingar veitir:
Geir Sigurðsson lögg.fasteignasali, s: 655-9000, netfang: geir@husasalan.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Húsasalan
143.000.000 kr.844 þ./m²
+193,0% á 12 árum
17. september 2014Fyrsta sala
48.800.000 kr.288 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vættaborgir 93

112 Reykjavík
143.000.000 kr.844 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1997TegundRað-/parhúsStærð169,4 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22322534Fasteignamat127.850.000 kr.Brunabótamat95.850.000 kr.
Skráð hjá
Húsasalan
HeimilisfangSíðumúla 33, 108 ReykjavíkSími537-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 87 myndir

Upp ↑