fasteignasölur.is
Skólabraut 3
1 af 33

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir  löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega mikið endurnýjða rúmgóða 78 m2 tveggja herbergja íbúð á jarðhæð við Skólabraut 3 á Seltjarnarnesi fyrir 65 ára og eldri. Þjónustukjarni er á jarðhæðinni þar sem rekið er fjölbreytt félagsstarf.  Eignin er skráð 79,3 fm hjá HMS og er geymslan 4,8 fm þar af. 

Nánari lýsing eignar.

Forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er algerlega endurnýjað með fallegri innréttingu með quartz borðplötu, innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél, span helluborð með viftu yfir, tveir ofnar í vinnuhæð, rúmgóður borðkrókur og parket á gólfi.
Stofan er björt með parketi á gólfi , sérsniðnar hillur sem fylgja ,  útgengt á verönd með skjólveggjum, fyrir framan íbúðina er púttvöllur.
Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innrétting með efri og neðri skápum, walk-in sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting fyrir ofan, handklæðaofn, borðplata með skolvaski.
Sér geymsla íbúðarinnar er á hæðinni með hillum.

Verið að klára utanhúsviðgerðir á Skólabraut 3-5 sem felast í að mála þakjárn, þakkant, rennur, glugga, múrviðgerðir og málun sem búið er að greiða fyrir.

Þjónustukjarni er á jarðhæðinni. Þar er rekið fjölbreytt félagsstarf og margvísleg tómstundastörf í boði eins og t.d. handavinna, útskurður, bókband, leirlist og fleira. Þá eru spilakvöld haldin, bingó, billiard, pútt og fleira. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu ásamt morgunkaffi. Einnig er hægt að fara í hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Húsvörður er starfandi í húsinu. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og heilsugæslu, sundlaug, World class, bókasafn og Hagkaup á Eiðistorgi.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
67.900.000 kr.871 þ./m²
+41,5% á 5 árum
6. september 2021Fyrsta sala
48.000.000 kr.615 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skólabraut 3

170 Seltjarnarnes
67.900.000 kr.871 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1982TegundFjölbýlishúsStærð78 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF206765122Fasteignamat65.100.000 kr.Brunabótamat44.750.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑