fasteignasölur.is
Efstaland 24
1 af 36

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Efstaland 24.Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Efstaland 24. Björt, falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð við Efstaland í Fossvoginum. Um er ræða 80,6 fm íbúð á 2.hæð með frábæru útsýni yfir Fossvogsdalinn, frá anddyri er gengið upp hálfa hæð og þá er íbúðin á vinstri hönd. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús og rúmgóða stofu með útgengi út á suður svalir. Sameiginlegt þvottahús er á neðstu hæð ásamt sérgeymslu (ekki talin með í fermetratölu), vagna- og hjólageymslu.
Íbúðin er staðsett miðsvæðis í Fossvoginum í barnvænu og eftirsóttu hverfi, stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivistarsvæði.
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og var því lokið haustið 2023.
Húsið hefur fengið gott viðhald; á síðustu sex árum hefur það verið málað að utan, bílastæði endurnýjuð, hellulagt framan við og hiti settur í stétt, nýjar sorpgeymslur settar, stigagangur teppalagður, veggir og gólf máluð í sameign, skipt um frárennsli og dren norðan megin, lóðin tekin í gegn og nýjar grasþökur settar. Verið er að skipta um glugga á norðurhlið, en skipt var upp glugga og svalarhurðir á suðurhlið fyrir nokkrum árum sem og um þakjárn og pappa.
Eignin er laus fljótlega. 

Nánari lýsing – íbúðin hefur öll verið endurnýjuð, harðparket er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi, en þar eru ljósar flísar.
Forstofa: Gengið er inn í forstofu og í holi er fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með “walk in” sturtu, hvít innrétting, upphengt klósett og handklæðaofn.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með SMEG veggofni, innbyggðum ískáp/frysti, uppþvottavél, veggháfi og electrolux helluborði. Eldhús og stofa flæða saman, harðparket er á gólfum og stór gluggi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og útgengi út á suðursvalir með útsýni yfir Fossvogsdal.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er mjög rúmgott, með fataskápum, stórum glugga og útsýni yfir Fossvogsdalinn
Svefnherbergi II og III eru minni, með góðum gluggum.

Sérgeymsla: Er á 1.hæð ca 6-7 fm ( ekki skráð fm tölu eignar).
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vagna- og hjólageymslu.
Íbúðin er skrá skv. FMR 80,6 fermetrar en er í raun með geymslu í kringum 85-86 fermetrar.

Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515  jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
74.900.000 kr.929 þ./m²
+101,3% á 10 árum
3. mars 2017Þinglýstur kaupsamningur
37.200.000 kr.462 þ./m²
+55,6% á 3 árum
29. nóvember 2013Fyrsta sala
23.900.000 kr.297 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Efstaland 24

108 Reykjavík
74.900.000 kr.929 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1968TegundFjölbýlishúsStærð80,6 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20367331Fasteignamat72.050.000 kr.Brunabótamat47.900.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑