fasteignasölur.is
Rjúpnasalir 14
1 af 148

Um eignina

Rjúpnasalir 14 Kópavogi - Afar falleg 4ra herb. íbúð með miklu útsýni, suðursvölum með svalalokun og bílastæði í bílakjallara með geymslu beint inn af stæði (þvottastæði í bílakjallara).

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar sjarmerandi og vel skipulagða 4ra herb. íbúð í vönduðu og fallegu húsi við Rjúpnasali 14 í Kópavogi. Um er að ræða 129,0 fermetra íbúð í lyftuhúsi á 4. hæð með rúmgóðum yfirbyggðum svölum og fallegu og óhindruðu útsýni til suðvesturs (m.a. yfir golfvöll GKG). Sérbílastæði í bílakjallara og góð 7,4 fermetra geymsla sem er staðsett við bílastæði. Þvottaherbergi er staðsett inn af íbúð.

Íbúðin skiptist í forstofu, sjónvarpsstofu, rúmgóða stofu með gluggum til suðausturs og suðvesturs, fallegu eldhúsi sem er opið að hluta við stofu með borðkrók, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Bílastæði og geymsla í kjallara.

Sameign hússins er afar snyrtileg með flísum á ytra anddyri og teppum á sameign. Tvær lyftur eru í húsinu sem ganga niður í bílakjallara/geymsluganga. Rafmagnshurðaropnun er á aðalhurðum í sameign. Lóðin er snyrtileg og frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginlegum malbikuðum stæðum. 


Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum. 
Sjónvarpsstofa: Með flísum á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og gluggum til suðausturs og suðvesturs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Afar fallegt útsýni er frá stofu og svölum.
Svalir: Eru rúmgóðar, með flísum á svalagólfi og með svalalokun. Afar fallegt útsýni er til suðausturs og suðvesturs, m.a. yfir hluta af golfvelli GKG.
Eldhús: Með fallegri viðar eldhúsinnréttingu og flísum á gólfi. Stál bakaraofn, keramik helluborð og AEG uppþvottavél. Flísar á milli skápa og borðkrókur með glugga til suðvesturs með fallegu útsýni.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Vinnuborð, vaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottaherbergi er staðsett inn af eldhúsi.
Hjónahebergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til suðausturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturta og baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask, salerni, handklæðaofn og útloftun.

Sérmerkt bílastæði: Er vel staðsett í bílakjallara. Rafhleðslukerfi komið upp og geymsla beint inn af bílastæði.
Sérgeymsla: Í kjallara er 7,4 fermetrar að stærð og er staðsett beint inn af bílastæði.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign. Málað gólf og útgengi á lóð.

Nánari upplýsingar hjá Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
96.900.000 kr.751 þ./m²
+205,7% á 19 árum
9. október 2007Fyrsta sala
31.700.000 kr.246 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Rjúpnasalir 14

201 Kópavogur
96.900.000 kr.751 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð129 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF226397110Fasteignamat91.950.000 kr.Brunabótamat69.990.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 148 myndir

Upp ↑