fasteignasölur.is
Arnarhlíð 1
1 af 21

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð 57,70 fm tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í nýlegu lyftuhúsi í góðu hverfi við Hlíðarenda. Íbúðin er með gólfsíðum gluggum og aukinni lofthæð. Íbúðin hefur aðgang að bílastæði fyrir framan hús sem er lokað af með hliði og er því eingöngu fyrir íbúa hússins.

Nánari lýsing: 
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Þaðan tekur við opið og bjart alrými þar sem stofa og eldhús mynda samfellda heild.
Baðherbergi er staðsett við forstofuna. Rúmgóð og björt stofa með aukinni lofthæð.
Stofan tengist eldhúsi og þaðan er útgengt á svalir.
Smekklegt eldhús með góðu vinnuplássi og eyju. Innréttingin býður upp á gott skápapláss og innbyggðan ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn. Háfur er yfir eldunarsvæði og parket á gólfi. Steinn á borði. Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi og gluggum sem veita góða birtu.
Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góð aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara en rennihurð aðskilur þvottaaðstöðuna frá baðrýminu.
Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan baðherbergi en þar eru flísar.
Sérgeymsla í sameign, 3,6 fm að stærð. Lyfta er í húsinu og myndavéladyrasími í forstofu. Á hverri hæð hússins eru stórar skjólgóðar sameiginlegar svalir. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Nánari upplýsingar veitir:
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is




 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
63.900.000 kr.1107 þ./m²
+64,3% á 8 árum
23. júlí 2018Fyrsta sala
38.900.000 kr.678 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Arnarhlíð 1

102 Reykjavík
63.900.000 kr.1.107 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð57,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF23607282Fasteignamat61.950.000 kr.Brunabótamat41.700.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑