fasteignasölur.is
Heiðarbrún 13
1 af 39

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt og afar rúmgott 8 herbergja 214,9 fm einbýlishús á einni hæð með stórum innbyggðum 63,7 fm tvöföldum bílskúr og sérlega fallegri, afgirt­ lóð á góðum stað í Hveragerði. Eignin er mjög björt og vel skipulögð, með fallegum rýmum, mikilli lofthæð og góðu flæði milli innirýma og útisvæða. Útisvæðið er einstaklega vel heppnað og hentar vel fyrir stóra fjölskyldu.

Birt flatarmál eignarinnar er 214,9 fm og þar af er bílskúr skráður 63,7 fm.
Nánar tiltekið eign, fastanúmer 221-0249, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"


"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"


Helstu atriði
  • Sölupunktar eignar:
    • Sérlega falleg afgirt séreignarlóð
    • Tvær veröndir og gott útisvæði
    • Stór innbyggður tvöfaldur bílskúr
    • Hiti er í gólfum í húsinu
    • Björt og vel skipulögð eign á einni hæð
Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, stofur/alrými, eldhús, herbergjagang, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús, salerni, lítið herbergi (innan við þvottahús), tvöfaldan bílskúr og útisvæði/ verandir.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðu rými fyrir yfirhafnir.
Hol:
Flísalagt hol. Tvöföld hurð með gleri aðskilur stofur frá holi. Gott tengirými innan hússins sem leiðir áfram inn í alrými að svefnherbergjum og þaðan í .
Stofur / alrými:
Stórar og bjartar stofur með mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu í lofti. Útgengt er af alrými/stofum út á verönd og í garð.
Sólskáli:
Með dökkum gluggum og flísum á gólfi sem myndar notalegt rými innan alrýmisins. Útgengi er úr sólskála á verönd og í garð.
Eldhús:
Rúmgott eldhús með ljósri innréttingu, mósaíkflísum á vegg við helluborð, mikið skápa- og skúffupláss og góð borðaðstaða. Eldhúsið er vel staðsett í húsinu og hentar vel til daglegrar notkunar.

Baðherbergi:
Mjög vandað og fallegt baðherbergi með flísum í hólf og gólf og snyrtilegri innréttingu. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi, innrétting með tveimur vöskum, handklæðaofn og gluggi.
Hjónaherbergi:
Rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum sem ná yfir heilan vegg.
Svefnherbergi (3):
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum, tvö þeirra með fataskápum.
Þvottahús/ hol:
Þvottahús í opnu rými með inngöngu frá gangi og tveimur útgöngum, annars vegar til hliðar við bílskúr og hins vegar beint út í bakgarð á pall. Innangengt í bílskúr.
Salerni:
Með vask og spegli, flísar á gólfi.

Lítið herbergi:
Innan við þvottahús er herbergi, nýtist vel sem skrifstofa, geymsla eða eftir þörfum.
Bílskúr:
Tvöfaldur, innbyggður bílskúr með flísum á gólfi og mikilli lofthæð. Góðir gluggar og lítið geymsluloft. Tvær bílskúrhurðar með sjálfvirkum hurðaopnara.
Möguleikar: Góður möguleiki er á að nýta rýmið (t.d. hluta bílskúrs og/eða tengd rými) sem viðbótar íbúðarrými, eftir nánari útfærslu og samþykktum, ef svo bæri við.

Lóð og umhverfi:
Falleg afgirt lóð umlykur húsið. Framlóðin er sérlega falleg og vel gróin með stórri hellulagðri verönd, timburverönd með skjólveggjum, grasflöt með fánastöng og fjölbreyttum trjá- og plöntugróðri, m.a. stóru og afar fallegu gullregni við fánastöng sem setur sterkan svip á framlóðina. Hellulagt plan er fyrir framan tvöfaldan bílskúr. Baklóðin er með timburverönd og grasflöt sem nýtist vel til útiveru.

Staðsetning:
Húsið er staðsett í rólegum botnlanga á góðum stað í Hveragerði – stutt í Heilsustofnunina, sundlaug og helstu þjónustu.

Lokaorð
Heiðarbrún 13 er vönduð og fjölskylduvæn eign með frábæru rými, stórum tvöföldum bílskúr og einstaklega fallegri lóð. Hér er tækifæri til að eignast rúmgott einbýli á einni hæð í vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala,
Sími 661 7788 • Tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu. Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · STOFN - Fasteignasala ehf.
104.700.000 kr.487 þ./m²
+2,6% á 2 árum
24. júlí 2024Þinglýstur kaupsamningur
102.000.000 kr.475 þ./m²
+132,9% á 8 árum
20. janúar 2017Fyrsta sala
43.800.000 kr.204 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Heiðarbrún 13

810 Hveragerði
104.700.000 kr.487 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1988TegundEinbýlishúsStærð214,9 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF22102493Fasteignamat115.250.000 kr.Brunabótamat114.150.000 kr.
Skráð hjá
STOFN - Fasteignasala ehf.
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑