fasteignasölur.is
Kalkofnsvegur 2 - 270 fm
1 af 9

Um eignina

Til leigu: 270 fm glæsilegt nýtt skrifstofuhúsnæði með á 5. hæð að Kalkofnsvegi 2, (Hafnatorg) með útsýni til suð-austurs.

Nánari lýsing á rými:
Rýminu verður skilað fullinnréttuðu þar sem hönnun innraskipulags tekur tillit til þarfa starfsemi leigutaka. Opið vinnurými ásamt tveimur lokuðum fundarrýmum eða skrifstofum. Sameiginleg salernis, sturta og ræsting í sameign á hæð ásamt einu auka fundarherbergi í vesturenda sameignar.Í húsinu er rekið aðgangsstýringa- og öryggismyndavélakerfi sem tryggir einungis aðgang starfsmanna að húsinu.

Nánar um Kalkofnsveg 2:
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Undir húsunum er einn stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Allar nánari upplýsingar veita:
Reykjastræti fasteignafélag í síma 571-4990; utleiga@reykjastraeti.is.

Reykjastræti er nýlegt fasteignafélag sem leggur áherslu á að klæðskerasauma ný atvinnurými fyrir sína viðskiptavini. Meirihluti eigna félagsins hafa verið innréttaðar fyrir nútímalegar skrifstofur og heilbrigðisrými sem svara kalli nútímans. Fasteignasafn félagsins telur um 42 þúsund fermetra þar af 4 þúsund fermetrar í byggingu. Um 90% af fermetrum félagsins eru byggðir eftir 2018. Félagið leitar eftir farsælu langtíma viðskiptasambandi við sína leigjendur og stendur félagið fyrir góða þjónustu, gæði og áreiðanleika í viðskiptum.

Kalkofnsvegur 2 - 270 fm

101 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði3 bað
Byggingarár2018TegundAtvinnuhúsnæðiStærð270 m²Herbergi2InngangurTveir inngangarLyftaFasteignanúmerF236368022
Skráð hjá
Reykjastræti fasteignafélag
HeimilisfangLágmúli 7, 108Sími571-4990

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑