fasteignasölur.is
Dúfnahólar 2
1 af 24

Um eignina

OPIÐ HÚS FELLUR NIÐUR - EIGNIN ER SELD 

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja útsýnisíbúð við Dúfnahóla 2 í Reykjavík. Íbúðin er skráð á 1. hæð en er á annarri hæð frá bílaplani. Eignin býður upp á björt og rúmgóð rými, fallegt útsýni og yfirbyggðar svalir. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurbætt og ný lyfta var sett í húsið árið 2024.

Birt stærð eignarinnar er 63,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 5,6 fm.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, bjarta stofu og borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi. Eigninni fylgir sérgeymsla á jarðhæð auk hlutdeildar í sameiginlegu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing
Forstofa
með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa í björtu og rúmgóðu rými með fallegu útsýni og útgengi á yfirbyggðar svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi nýlega endurbætt með Fibo-veggplötum, innréttingu, salerni og sturtu, dúkur á gólfi.
Sérgeymsla á jarðhæð (5,6 fm).

Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.

Húsgjöld til húsfélagsins Dúfnahóla 2 eru 21.334 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn og þrif í sameign, þrif sorpgeymslu og húseigendatryggingu. Að auki eru greiddar 17.961 kr. á mánuði til húsfélagsins Dúfnahóla 2 - 4, sem renna í framkvæmdasjóð vegna viðhalds utanhúss.

Húsið hefur fengið töluvert viðhald og endurbætur á síðustu árum. Á árunum 2021–2022 var skipt um flesta glugga og opnanleg fög í húsinu og húsið klætt að hluta. Ný lyfta var sett í húsið árið 2024. Þá er nýlega lokið framkvæmdum við tréverk, glugga og svalalokanir á svölum. Sameign mjög snyrtileg.

Viðhaldsvinna við Húsfélagið Dúfnahólar 2-4. undanfarin ár.
2017. Skipt um alla glugga garðmegin og settir í staðinn plastgluggar og einnig skift um útidyrahurðir bílastæða og garðmegin. Svalir ekki með í þessari framkvæmd.
2019. Skipt um þak dúk og allar járnplötur á þaki hússins og settar í staðinn Aluzink járnplötur og nýjar lofttúður settar og einnig fjölgað þakrennu rörum. Innviðir þaksins voru í góðu ásigkomulagi.
2020. Skipt um gangstétt bílastæða megin og sett í staðin hellulögð stétt með snjóbræðslu undir. Einnig sett 2 metra breið snjóbræðsla undir hellu stéttina garðmegin í Dúfnahólum 2. sem nær frá tröppunum að malbikuðu stéttinni. Affallið af hitaveituvatni hússins er nýtt til að hita upp stéttarnar.
2021. Skipt um alla glugga bílastæða megin og settir í staðinn plastgluggar, þetta á ekki við svalirnar.
2025-2026. Rifnar og fjarlægðar timbur og gler yfirbyggingar svala og byggðar nýjar úr stáli, steinull, áli, gleri og Viroc steypuplötum

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
49.800.000 kr.789 þ./m²
+4,7% á 1 ári
10. febrúar 2026Þinglýstur kaupsamningur
47.550.000 kr.754 þ./m²
+55,9% á 6 árum
19. júní 2020Fyrsta sala
30.500.000 kr.483 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dúfnahólar 2

111 Reykjavík
49.800.000 kr.789 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1974TegundFjölbýlishúsStærð63,1 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20485003Fasteignamat46.250.000 kr.Brunabótamat31.550.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑