fasteignasölur.is
Jaðar 18
1 af 37

Um eignina

NÝTT Í SÖLU -  JAÐAR 18.  ARNARSTAPA, SNÆFELLSNESI.  DRAUMA SUMAR / HEILSÁRSHÚS, NÆR ALGERLEGA ENDURNÝJAÐ NÝLEGA,  Á EINSTÖKUM  ÚTSÝNISSTAÐ VIÐ STRÖNDINA.   EIGN Í ALGERUM SÉRFLOKKI. 

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477, kynnir: Glæsilegt nær algerlega endurnýjað 73,5 fm frístundahús á frábærum útsýnisstað útvið sjávarsíðuna á Arnarstapa, Snæfellsnesi. Glæsilegt útsýni útá Atlandshafið og oft ber fyrir hvalasýn, einnig útsýni á Stapafell og Snæfellsjökulinn.  Húsið stendur á 2000 fm leigulóð í eigu Snæfellsbæjar sem staðsett er við hraunjaðarinn á Hellnahrauni.  Lóðin er öll kjarri vaxin og gróðursæl.  Húsið er byggt 1995 en vegna leka-óhapps sem varð nýlega hefur húsið nú nær algerlega verið endurnýjað á vandaðan, nútímalegan hátt í tímalausum Skandinavískum stíl.  M.a. lagnir, einangrun, öll veggjar og loftklæðning, rafmagn, hitakerfi, innréttingar, innihurðir, öll tæki og blöndunartæki og fleira til. 


SKIPULAG: 
Forstofa með skáp.  Eldhús og stofurými í einni heild með glæsilegu nýju eldhúsi og Miele tækjum (eldavél, ofn, uppþvottavél, Samsung ísskápur) og kvarts borðplötum. Ný kamína er í stofu.  Garðskáli er útaf stofunni með útsýnisgluggum útá hafið.  Glæsilegt algerlega endurnýjað baðherbergi flísalagt með walk inn sturtu, vaskinnréttingu, speglaskáp, upphengdu salerni og glugga.  Tvö svefnherbergi með rúmum.  Þvottaherbergi með nýlegri LG þvottavél og þurkara.  ca. 20 fm svefnloft.    Glæsilegt nýtt viðar/harðparket á öllum gólfum nema flísar á baði. 

Í húsinu er varmadæla sem lækkar hitakostnaðinn verulega og þá er komin ljósnetstenging í bústaðinn.  Við húsið er mjög góður afgirtur timbur sólpallur og á honum er heitur pottur og 6fm geymsluskúr. Jaðar 18 stendur á mjög frábærum rólegum útsýnisstað steinsnar frá sjónum. 

Nánari upplýsingar og skoðun !  Hafið samband við sölumenn (Pétur Jóhannsson aðst.mann fast.sala á Snæfellsnesi 893-4718  psj@simnet.is   eða Ingólf  Gissurarson lg.fs.  896-5222  ingolfur@valholl.is ) til að fá sent umfangsmikla lýsingu frá seljanda á því sem gert var og en þar var um að ræða mest allt í húsinu.
                                

 

Jaðar 18

356 Snæfellsbær
69.000.000 kr.939 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundSumarhúsStærð73,5 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22230951Fasteignamat42.550.000 kr.Brunabótamat50.050.000 kr.
Skráð hjá
Valhöll
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑