fasteignasölur.is
Kjarnagata 63 - 201
1 af 19

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kjarnagata 63 íbúð 201

Falleg 4ra herbergja íbúð á annari hæð í suður enda í nýlegu fjölbýli með lyftu.  Íbúðin er skráð 91,2 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, gang, alrými með eldhúsi og stofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi auk rúmgóðrar geymslu í sameign.


Forstofa og gangur eru með harðparketi á gólfi og þar er fataskápur.
Stofa og eldhús er eru í opnu og björtu alrými með gluggum til suðurs og svölum til vesturs.  Harðparket er á gólfi og í eldhúsi er sprautulökkuð innrétting með flísum á milli skápa.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og þar er sprautulökkuð innrétting, upphengt wc, walk-in sturta og innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslan í kjallara skráð 6,6 m²

Annað
- Skemmtilegt útsýni er úr íbúðinni.
- Björt íbúð með gluggum til þriggja átta.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Hiti í gólfi er í allri íbúðinni.
- Sérinngangur af svölum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 


 

Kjarnagata 63 - 201

600 Akureyri
69.500.000 kr.762 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð91,2 m²Herbergi4LyftaFasteignanúmerF25140195Fasteignamat63.150.000 kr.Brunabótamat56.850.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑