fasteignasölur.is
Þórsgata 12
1 af 29

Um eignina

Valhöll kynnir mikið endurnýjaða og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð (upp einn stigapall) með suðursvölum í hjarta miðborgarinnar. Þrjú svefnherbergi. Nýleg eldhúsinnrétting og forstofuskápur frá HTH. Sex íbúðir í stigaganginum. 
Íbúðin er skráð 115,8 fm og geymslan 7,5 fm, samtals 123,3 fm. 


Íbúð staðsett á rólegum stað. Stutt göngufæri í verslun, kaffihús, veitingarstaði og menningu miðborgarinnar.

Bókið skoðun:
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir í síma 862-1110 eða hrafnhildur@valholl.is

Elín Alfreðsdóttir lgf. í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfanginu elina@valholl.is

Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi og nýlegur fataskápur.
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf, innrétting, walk-in sturtuklefi.
Eldhús: stórt og rúmgott. L-laga innrétting frá HTH með neðri skápum og efri að hluta auk I-laga innréttingar með skápum sem ná upp í loft. Bakarofn í góðri vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Harðarket á gólfi. möguleiki er á að tengja þvottavél í eldhúsi.
Stofa: björt með útgengt á suðursvalir. Harðarket á gólfi.
Hjónaherbergi: innaf stofu. Falleg glerhurð, sérsmíðuð og sett upp af Títan stálsmiðju. Opið fatahengi ásamt skúffueiningum (fylfgir ekki) og harðparket á gólfi. 
Lokaður svefnherbergjagangur með tveimur svefnherbergjum.
Herbergi 1: harðparket á gólfi og góður upprunalegur fataskjápur.
Herbergi 2: harðparket á gólfi.
Þvottahús: er sameiginlegt í kjallara hússins þar sem hver er með sínar vélar.
Sérgeymsla íbúðar er í kjallara.
Auka geymslupláss innaf þvottahúsi er sameiginlegt en þar er hver íbúð með sitt pláss í hillum.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara. 

Húsgjöld eru nú  kr.35.000.- á mánuði. 

Endurbætur síðustu ára skv. seljendum:
Ný eldhúsinnrétting sett upp í desember 2025 og tæki endurnýjuð á sama tíma. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél, ofn, helluborð og háfur. 
Nýtt harðparket lagt árið 2022 
Baðherbergi endurnýjað árið 2016.
Dregið nýtt rafmagn í eldhús í lok árs 2025.
Skipt um alla glugga og gler í íbúðinni nema í hjónaherbergi innaf stofu, árið 2024. Ný svalahurð árið 2024 og gluggar annara íbúða í húsinu endurnýjaðir eftir þörfum.
Húsið viðgert og málað árið 2021.
Þakjárn og pappi endurnýjað árið 2021.
Skolplagnir fóðraðar undir húsi og út í götu árið 2019.

Frekari upplýsingar veita:
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir í síma 862-1110 eða hrafnhildur@valholl.is

Elín Alfreðsdóttir fasteignasali í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfanginu elina@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti,

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Valhöll
108.900.000 kr.883 þ./m²
+36,3% á 5 árum
14. janúar 2022Fyrsta sala
79.900.000 kr.648 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þórsgata 12

101 Reykjavík
108.900.000 kr.883 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1963TegundFjölbýlishúsStærð123,3 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF200689810Fasteignamat91.450.000 kr.Brunabótamat66.150.000 kr.
Skráð hjá
Valhöll
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑