fasteignasölur.is
Jöfursbás 9b
1 af 23

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: LAUS VIÐ KAUPSAMNING -  Falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu hverfi við sjóinn í Grafarvoginum.  Dökkar innréttingar eru í íbúðinni (ólíkt öðrum íbúðum í húsinu) frá HTH innréttingum og innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Fallegt parket á gólfum. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, opið eldhús og stofu og svefnherbergi. Íbúðin er skráð 58,5 fm, þar af er sérgeymsla í kjallara 6,2 fm. Loftskiptikerfi er í íbúðinni. EINGÖNGU FYRIR KAUPENDUR Á ALDRINUM 18-40 ÁRA.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is 
Nánari lýsing: Íbúðin er nr. 208 í nýlegu fjölbýlishúsi við Jöfursbás 9b og voru fyrstu íbúðirnar afhentar  um mitt ár 2025. 
Jöfursbás 9b er 4ra hæða einingarhús frá Noregi byggt á steyptum undirstöðum og lyftuhúsi. Allar íbúðir skilast með HTH-Innréttingum í eldhúsi og fataskápum í svefnherbergjum (í þessari íbúð var skipt yfir í dökkar innréttingar og bætt við innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, sem ekki fylgdi). Baðherbergi er flísalagt en alrými eignar skilast án gólfefna en hér hefur verið sett á fallegt parket. Sér loftskiptikerfi er í hverri íbúð.
Gufunesið er nýjasta hverfi Reykjavíkur. Gufunes á að vera eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Lögð verður áhersla á að nýta umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgangi. Verð miðast við byggingavísitölu á afhendingardegi. Verðið á þessari íbúð var uppgefið af Reykjavíkurborg og miðast við hækkun á vísitölu í hverfinu frá sölu íbúðarinnar til dagsins í dag. Ásett verð er lægra en viðmið Reykjavíkurborgar. 

Sjá nánari upplýsingar um húsin í hverfinu, hverfið sjálft og markmið þess á heimasíðu: www.hverfidgufunes.is

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
54.900.000 kr.938 þ./m²
+6,6% á 2 árum
30. janúar 2025Fyrsta sala
51.500.000 kr.880 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Jöfursbás 9b

112 Reykjavík
54.900.000 kr.938 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð58,5 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF253027718Fasteignamat52.600.000 kr.Brunabótamat36.250.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑