fasteignasölur.is
Álalind 5
1 af 40

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali  kynnir glæsilega og bjarta 3. herbergja 91,6 m2 íbúð á 3. hæð með góðum vestursvölum í fallegu álklæddu fjölbýlishúsi með lyftu við Álalind 5 í Kópavogi.

Álalind er í nýlegu hverfi sem nefnist Glaðheimar og fékk gatan verðlaun sem gata ársins árið 2022 sem veitt var af umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs þar segir m.a. Gatan einkennist af snyrtilegum og vel hirtum lóðum, litríkum og fjölbreyttum akritektúr og skemmtilegum almenningssvæðum. 


Um er að ræða afar fallegt fjölbýlishús á fjórum hæðum. Lóðin er falleg með hellulagðri stétt með snjóbræðslu fyrir framan hús. Hellulögð bílastæði eru við lóðina. Snyrtleg sameign með flísum á sameiginlegri forstofu á jarðhæð og teppi á stigagangi.

Nánari lýsing eignar
Forstofan
er rúmgóð með harðparketi á gólfi og skápum sem ná upp í loft.
Eldhúsið er opið inn í stofu með harðparket á gólfi og falleg eldhúsinnrétting með AEG eldhústækjum,  stál bakaraofn, keramik helluborð, innbyggð uppþvottavél og vifta. Lýsing undir efri skápum.
Borðstofa með harðparketi á gólfi og glugga til vesturs, útgengi út á svalir til vesturs.
Stofa með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs og norðurs, fallegt útsýni að suðurhlíðum Kópavogs. 
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn og falleg innrétting við vask. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss og útloftun.
Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi, rúmgóðum innbyggðum skápum og glugga til norðurs, útsýni að suðurhlíðum Kópavogs.
Barnaherbergi með harðparket á gólfi og innbyggðir fataskápar. Gluggi til norðurs með útsýni að suðurhlíðum Kópavogs.
Sér 6,8 m2 geymsla í kjallara með epoxy á gólfi.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: Er rúmgóð og staðsett í kjallara. Epoxy gólf, gluggi til norðurs og útgengi á framlóð.

Sameign er flísalögð ytri forstofa og myndavéladyrasími. Teppalagður stigagangur og lyfta í sameign. Rafmagnsopnun á útidyrahurðum í sameign.

Lóðin er snyrtileg með tyrfðri flöt. Hellulagðar stéttir með snjóbræðslu og góð hellulögð stæði fyrir framan hús. Barnarólur eru staðsettar á baklóð.

Vel staðsett eign þar sem stutt er í leikskóla (Dalur og Núpur) og grunnskóla (Lindaskóli). Stutt í verslun og þjónustu, fallegar göngu- og hjólaleiðir (m.a. við Vífilsstaðavatn) og golfvöllur í næsta nágrenni. Stutt í íþróttasvæði Gerplu við Salalaug og auk þess keyrir frístundabifreið að íþróttasvæði Breiðabliks.

Allar nánari upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
79.900.000 kr.872 þ./m²
+14,1% á 3 árum
24. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
70.000.000 kr.764 þ./m²
+49,9% á 4 árum
25. febrúar 2020Þinglýstur kaupsamningur
46.700.000 kr.510 þ./m²
+16,8% á 3 árum
31. mars 2017Fyrsta sala
40.000.000 kr.437 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Álalind 5

201 Kópavogur
79.900.000 kr.872 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2017TegundFjölbýlishúsStærð91,6 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF23601615Fasteignamat73.200.000 kr.Brunabótamat56.350.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑