fasteignasölur.is
Sóltún 13
1 af 33

Um eignina

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og bjarta 108,5 fm - 3ja herbergja endaíbúð á annari hæð á þessum vinsæla stað í eftirsóttu lyftuhúsi við Sóltún 13 í Reykjavík. 
Eignin skiptist í stórt alrými með stofu, borðstofu, sólríkar suður svalir, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og geymsla innan íbúðar. Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.  Eignin getur verið laus fljótlega.

Nánari lýsing :
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp
Eldhúsið er inn af stofunni, þar er innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúsinnréttingin stúkar eldhúsið af frá stofunni. Parket á gólfum.
Stofa og hol mynda saman sérstaklega rúmgott og alrými. Parket á gólfum. Úr stofu er gengt út á suðursvalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf. Vönduð innrétting  og góður sturtuklefi.
Svefnherbergin eru tvö. Bæði parketlögð með góðum fataskápum.
Þvottahús er rúmgott og góð geymsla/búr inn af þvottahúsi.

.
Vandaðar eikarinnréttingar og skápar frá Brúnás.
Íbúðinni fylgir 4 fm sérgeymsla í kjallara og sérmerkt bílastæði í bílakjallara.
Falleg og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis í borginni 
Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina
Húsið var hannað með sérstaka áherslu á góða hljóðvist. Vönduð einangrun er á milli hæða og massífar innihurðir stuðla að auknum hljóðþægindum og næði fyrir íbúa.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Sóltún 13

105 Reykjavík
88.900.000 kr.819 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2000TegundFjölbýlishúsStærð108,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF22464553Fasteignamat90.650.000 kr.Brunabótamat77.750.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑