fasteignasölur.is
Breiðvangur  26
1 af 33

Um eignina

Breiðvangur 26 – Hafnarfjörður

Til sölu er rúmgóð og vel skipulögð íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi, skráð 150,8 fm samkvæmt fasteignaskrá. Eignin er afar vel staðsett þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Í íbúðinni eru 5 svefnherbergi, sem gerir hana einstaklega hentuga fyrir stóra fjölskyldu.


Framkvæmdir síðustu ára (samkvæmt seljanda):
Húsið málað og múrviðgert að utan
Skipt um járn og pappa á þaki
Skipt um hluta glugga innan íbúðar

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með tengingu við gang/hol. Rúmgott og bjart alrými sameinar stofu og borðstofu með útgengi út á suðursvalir.
Eldhúsið er með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, ásamt borðkrók. Innaf eldhúsi er þvottahús með vinnuplássi.
Svefnherbergin eru fimm talsins – fjögur barnaherbergi og eitt rúmgott hjónaherbergi.
Baðherbergið er flísalagt, með góðri innréttingu og sturtuaðstöðu í baðkari.
Bílskúr fylgir eigninni og er með bæði heitu og köldu vatni. Sérgeymsla fylgir í sameign hússins, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu

Hér er um að ræða vel staðsetta og fjölskylduvæna eign með miklu rými og góðu skipulagi.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

Breiðvangur 26

220 Hafnarfjörður
78.900.000 kr.523 þ./m²
Fjölbýlishús5 svefn · 1 bað
Byggingarár1974TegundFjölbýlishúsStærð150,8 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20739786Fasteignamat81.150.000 kr.Brunabótamat70.440.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑