fasteignasölur.is
Stórikriki 50
1 af 78

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. kynnir: Afar fallegt og vel byggt einbýli á einni hæð, skráð 195 fm auk innb. bílskúr 41 fm samtals stærð því 236 fm á þessum vinsæla stað í Mosfellsbæ. 
Frábær staðsetning innst í botnlanga, stór og fallegur garður snýr í suð-vestur með rúmgóðum palli/skjólgirðingum og heitum potti. Húsið er steypt (steinað að utan). Hiti í gólfum í votrýmum. Fullbúin góð eign. 

Eignin skiptist m.a. þannig: Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp, innangengt í rúmgóðan fullbúinn bílskúrinn, góð gestasnyrtinghol, rúmgott sjónvarphol. Rúmgott bjart eldhús með vönduðum ljósum innréttingum og góðum tækjum, spanhelluborð (80 cm). (útgengt í garðinn frá eldhúsi) Eldhúsið er opið inn í rúmgóða bjarta stofuna og borðstofuna, útgengt í garðinn þaðan. Hátt til lofts í eldhúsi og stofurýmum sem og öðrum rýmum. Svefnálma: Þrjú rúmgóð barnaherbergi með skáp, rúmgott þvottaherbergi með skáp/innréttingu og skolvaski: Mjög fallegt baðherbergi með fínni sturtuaðstöðu og baðkari, vönduð innrétting, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf, útgengt þaðan út á pallinn/pottinn og garðinn. Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi fyrir innan.

Ljóst eikarharðparket frá Agli Árnasyni (2012) og náttúruflísar á gólfum. Innfelld lýsing.  Núverandi eigendur tóku húsið í notkun 2010. Innréttingar og innihurðir úr eik  frá 2010 (Trésmiðja Akraness)
Bílskúr er rúmgóður, (hiti í gólfum) geymsla fyrir innan. 
Hiti í bílaplani. Heitur pottur. Gengið frá lóðarmörkum með holtagrjóti. 2012 og 2018 og stoðveggir í garði múraðir 2019 og klætt undir þakkant. Gluggar vandaðir úr mahony efni. Hús í góðu viðhaldi, stór og falleg lóð ( 837.0 fm )

Stutt er í skóla, verslanir, miðbæinn ofl. 

Þetta er áhugaverð húseign á einni hæð sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar veita Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og 
Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali s. 888-7979, einar@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Stórikriki 50

270 Mosfellsbær
179.800.000 kr.762 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2008TegundEinbýlishúsStærð236 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF229778947Fasteignamat145.550.000 kr.Brunabótamat129.200.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 78 myndir

Upp ↑