fasteignasölur.is
Hlíðarhjalli 40
1 af 15

Um eignina


Glæsileg 3ja herb. íbúð með bílskúr í suðurhlíðum Kópavogs. Ný svalalokun. Stór stofa með mikið útsýni. IMIROX fjármögnun í boði.

Glæsileg 3ja herb. íbúð með endabílskúr í suðurhlíðum Kópavogs. Ný svalalokun. Mikið útsýni. Íbúðin er laus frá 1. desember. 

 

Forstofa opin með stofu. Stór og björt stofa með glæsilegu útsýni í suður yfir Kópavogsdalinn. Möguleiki á að fjölga um 1 herbergi í stofu. Stórt hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Útgengi á svalir úr hjónaherbergi. Stórt svefnherbergi með skáp.  Baðherbergi með baði. Gluggi í baðherbergi. Nýlegt parket og nýlegar innihurðir. Elhús með miklu skápaplássi. Inni af eldhúsi er þvottahús og geymsla sem rúmar þvottavél, þurrkara, frystikistu og auk þess mikið skápapláss. 

 

Nýlegt parket á gólfum, en flísar í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi/geymslu og baðherbergi. Ofnakerfi íbúðarinnar er nýlega endurnýjað. 

 

Geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni. Geymslan er björt með góðri lýsingu og hillukerfi á 3 hliðar upp i loft - mikið geymslupláss. Ennfremur er hjóla- og vagnageymsla í sameign, ásamt þurrkherbergi. 

 

Bílskúrinn er stór endabílskúr með glugga og opnanlegu fagi, rafmagnsopnun á bílskúrshurð og inngönguhurð í bílskúrshurðinni. 

 

Sameignin er í mjög góðu og reglulegu viðhaldi. Steinn, þak og þakkantur málað með reglulegu millibili og skipt um rennur eftir þörfum. Leiksvæði í garði. Einkastæði framan við bílskúr og sameiginleg bílastæði á lóð. Stutt í skóla, leikskóla, Smáralind, Smáratorg, og fleiri þjónustukjarna á svæðinu. Mikið um göngustíga í hverfinu sem liggja niður með Kópavogslæk að sjó.

 

Fasteignin er skráð 116,80 fermetrar, þar af er bílskúrinn 24,2 fermetrar. Fasteignamat 2026: kr. 80.500.000.

 

Óskað er eftir tilboðum í fasteignina. Seljandi hefur áhuga á eignaskiptum, fyrir stærri íbúð í fjölbýli með bílskúr á höfuðborgarsvæðinu.

 

Fjármögnun: IMIROX fjármögnun til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is

 

Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com. 

 

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · e-fasteignir | Snjallari fasteignaviðskipti
89.900.000 kr.770 þ./m²
+247,1% á 19 árum
25. maí 2007Fyrsta sala
25.900.000 kr.222 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hlíðarhjalli 40

200 Kópavogur
89.900.000 kr.770 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1988TegundFjölbýlishúsStærð116,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF2061857Fasteignamat75.300.000 kr.Brunabótamat58.910.000 kr.
Skráð hjá
e-fasteignir | Snjallari fasteignaviðskipti
HeimilisfangGarðabær, 210Sími/ Heimasíða: www.e-fasteignir.is

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑