1 af 83
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega glæsilegt og uppgert einbýlishús á þremur hæðum á einum besta stað í hjarta Akureyrar. Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um hönnun á breytingum og hefur eignin öll verið gerð upp á glæsilegan máta á síðustu árum.Eignin er á þremur hæðum sem skiptist í:
Jarðhæð: Svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, þvottahús og bakinngangur.
Miðhæð: Anddyri, stórt og opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu - Gengið er út á sólpall úr eldhúsi.
Rishæð: Tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Jarðhæð:
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum kringum sturtu. Hvít innrétting með marmara borplötu. Stór og rúmgóður sturtuklefi og vegghengt salerni.
Þvottahús: Hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Í þvottahúsi er einnig bakinngangur í húsið.
Miðhæð: Forstofa: Flísar á gólfi og opið fatahengi. Fallegt opið rými með parketi á gólfi. Dökk eldhúsinnrétting og frístandandi eyjar. Stór gaseldvél er í innréttingu. Út frá eldhúsi er gengið útá suður-verönd. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og arinn.
Rishæð: Baðherbergi: Flísar á gólfi og kringum baðkar. Dökk innrétting með stein á borði. Svefnherbergi: Parketi á gólfi og hillur. Svefnherbergi: Parket á gólfi.
- Glæsileg eign í göngufæri við sundlaug Akureyrar, miðbæinn og alla helstu þjónustu.
- Búið er að endurnýja þak, glugga, útihurðar, lagnir, rafmagn og allt að innan.
- Hellulagt bílaplan með lýsingu.
- 14 fm geymslu/garðskúr er á lóð.
- Byggingarréttur á 60 fm stækkun við húsið.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
Tilboð
1. desember 2021Fyrsta sala
90.000.000 kr.528 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Þingvallastræti 10
600 Akureyri
Tilboð
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1932TegundEinbýlishúsStærð170,3 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21518451Fasteignamat75.000.000 kr.Brunabótamat81.650.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 83 myndir
Upp ↑

















































































