fasteignasölur.is
Brimdalur 8
1 af 53

Um eignina

* Seljendur skoða skipti á minni eign*

Vel skipulagt 185,0 fm parhús með bílskúr við Brimdal 8, 260 Reykjanesbæ.
Eignin skiptist í 143,5 fm íbúð og 41,5 fm bílskúr, samtals 185,0 fm skv. HMS.

Nánari lýsing:
Anddyri með skápum. Gestasalerni innaf anddyri. Eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa í rúmgóðu og björtu alrými með útg. á pall. Eldhús með góðu skápaplássi, tvöföldum ísskápi (fylgir með), innbyggðum ofni og combi-ofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél, tækjaskápi og barstólaaðstöðu. Þvottahús innaf eldhúsi með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt vaski og skápum. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, öll með skápum. Baðherbergi með baðkari, walk-in sturtu m/innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni, speglaskápi og glugga með opnanlegu fagi.
Innangengt í bílskúr úr anddyri. Bílskúr með epoxý á gólfi, bílskúrshurð með rafmagnsopnun, sér gönguhurð út á pallverönd. 

Húsið er hitað upp með gólfhita.
Búið er að koma fyrir hugbúnaði í flest ljós inní íbúðinni svo hægt er að stýra þeim með appi. 
Aukin lofthæð er í húsinu.
Verönd skiptist í lokaðan pall með heitum potti sem snýr til suðurs fyrir aftan hús og rúmgóðan grasflöt meðfram húsi.
Snjóbræðsla er undir bílastæði fyrir framan hús.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Ás
119.900.000 kr.648 þ./m²
+74,0% á 6 árum
1. mars 2021Fyrsta sala
68.900.000 kr.372 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brimdalur 8

260 Njarðvík
119.900.000 kr.648 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2021TegundRað-/parhúsStærð185 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF25049176Fasteignamat108.850.000 kr.Brunabótamat105.100.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 53 myndir

Upp ↑