fasteignasölur.is
Njörvasund 33
1 af 46

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu rúmgóða 3 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi ásamt bílskúr í góðu tvíbýli. Frábær staðsetning, stutt í skóla, verslanir og Laugardalurinn í göngufæri. Eignin er skráð skv. HMS alls 96,8 fm. Þar af íbúð 71,8 fm og bílskúr 25 fm.

Nánari lýsing eignar:
Gengið er inní íbúðina gegnum sérinngang
Rúmgóð tvö svefnherbergi, stór fataskápur í því stærra
Snyrtilegt baðherbergi með sturtu, falleg innrétting, gólfhiti, flísar á vegg og gólfi (frágangur eftir á flísum eftir gluggaskipti)
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt er útí garð á austurhlið
Eldhús er bjart og með nfallegri hvítri innrétting, opið á milli eldhúss og stofu sem veitir gott flæði.
Í bílskúrnum er rennandi vatn, ofn og rafmagn til staðar.

Gólfefni: Ljóst parket nema flísar á baðherbergi.
Stór geymsla er í kjallara (óskráð)
Sameiginlegt þvottaherbergi

Framkvæmdir samkvæmt fyrrum eiganda:
Nýtt þak og nýjar rennur árið 2021
Múrframkvæmdir og málað að utan árið 2021
Affallið frá ofnum lagað/endurnýjað árið 2021
Nýtt parket á íbúðina árið 2018
Settir nýir ofnar í íbúðina árið 2017
Rafmagn endurnýjað að hluta ásamt nýrri rafmagnstöflu árið 2017
Skipt var um neysluvatnslagnir eldhúss megin árið 2017
Inngang breytt í sérinngang árið 2016
Lögð ný plast lögn að bílskúr inní steypuhólka árið 2016
Settar svaladyr á austurhlið hússins árið 2015
Skipt um glugga og gler í íbúðinni árið 2015


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
74.900.000 kr.774 þ./m²
+17,8% á 4 árum
7. júlí 2022Fyrsta sala
63.600.000 kr.657 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Njörvasund 33

104 Reykjavík
74.900.000 kr.774 þ./m²
Hæð2 svefn · 1 bað
Byggingarár1957TegundHæðStærð96,8 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF20208701Fasteignamat71.550.000 kr.Brunabótamat51.460.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑