fasteignasölur.is
Skyggnisbraut 6
1 af 37

Um eignina

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Nýleg og falleg 3ja - 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli í Úlfarsárdal með sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð.
Mikil lofthæð er í íbúðinni og einstaklega fallegt og mikið útsýni úr almennt öllum rýmum íbúðar. Eignin er staðsett í vinsælu og grónu fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði FRAM, sund, bókasafnið og fallegar gönguleiðir um dalinn. 
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 90,2 fm, þar af er sérgeymsla íbúðar innan íbúðar með glugga í fullri stærð og getur því nýst sem herbergergi. 
** Einn eigandi frá upphafi ** Myndavéladyrasími innan íbúðar **

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT 
 
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna



Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu innan íbúðar með glugga í fullri stærð, opið eldhús-, stofu- og borðstofurými og forstofu/anddyri.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa / anddyri: Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með gluggum til þriggja átta sem gefa eigninni einstaklega góða birtu. Útgengt er úr stofunni á góðar ÚTSÝNIS_suður svalir sem eru undir allri íbúðinni bæði sunnan og að mestu austan megin.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi til loftunar er í eldhúsi.
Rúmgott baðherbergi með walk-in sturtu, upphengdu salerni, innréttingu undir handlaug og á móti sturtunni. 
Þvottahús er inn af baðherberginu og er hvít innrétting með góðu skápaplássi á móts við þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherberginu sem tryggir góða loftræstingu. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergin eru tvö - möguleiki á þriðja herbergi.
Herbergi I - Hjónaherbergi: 
Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Þrír gluggar í tvær áttir og því góð birt og útsýni.
Herbergi II - Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Stór gluggi sem tryggir góða birtu og útsýni.
Sérgeymsla eignarinnar / Herbergi III er innan íbúðar sem er með parketi á gólfi og glugga í fullri stærð, sem gerir hana vel nothæfa sem þriðja herbergi.
Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu og er leigð rafhleðslustöð frá N1 í bílastæðinu.
Sameignin er öll hin snyrtilegasta, geymslur merktar og einnig er rúmgóð hjóla-og vagnageymsla. 

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

------ 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
81.900.000 kr.908 þ./m²
+84,0% á 8 árum
3. maí 2018Fyrsta sala
44.500.000 kr.493 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skyggnisbraut 6

113 Reykjavík
81.900.000 kr.908 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2016TegundFjölbýlishúsStærð90,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF235644010Fasteignamat79.350.000 kr.Brunabótamat72.170.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑