fasteignasölur.is
Naustabryggja 3
1 af 36

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð í góðu fjölbýli við Naustabryggju í Reykjavík. Aukin lofthæð er í hluta íbúðar.
Góðar suðursvalir. Þvottahús er innan íbúðar. Stutt á stoðbrautir og í alla helstu þjónustu. Sérstæði í bílakjallara.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 100 fm en þar af geymsla í sameign 6,7 fm. 
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign


Nánari lýsing á eign:
Forstofa er parketlögð með góðum fataskáp.
Eldhús með fallegri innréttingu með nýjan bakaraofn og helluborð, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Borðstofa/stofa er rúmgóð og björt og er aukin lofthæð í hluta rýmis. Parket á gólfi.  
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með fataskáp og aukna lofthæð. Parket á gólfi. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott með fataskáp og aukna lofthæð. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu og góða innréttingu.
Þvottahús/geymsla  er innan íbúðar.

Snyrtilegur stigagangur.
Sérgeymsla í sameign í kjallara
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is   Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
77.900.000 kr.779 þ./m²
+100,3% á 10 árum
27. september 2016Fyrsta sala
38.900.000 kr.389 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Naustabryggja 3

110 Reykjavík
77.900.000 kr.779 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð100 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF22586706Fasteignamat75.850.000 kr.Brunabótamat68.130.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑