fasteignasölur.is
Drápuhlíð 12
1 af 26

Um eignina

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Drápuhlíð 12, 105 Reykjavík:

Góða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð í kjallara í góðu fjölbýlishúsi í Hlíðarhverfinu. Birt stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands er samtals 87,9 fm þar af er íbúðarhluti 85,2 fm og geymsla 2,7 fm. Sér suður sólpallur út frá stofu. Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir og náttúruna.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, sameiginlegt þvottahús.

Nánari lýsing:
Forstofa:  Skápur og fatahengi, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, hvítur skápur, útgengi út á sér suður sólpall, parket á gólfi. Er í dag notað sem herbergi. 
Eldhús: Hvít innrétting, innbyggð uppþvottavél, eldavél, vifta, borðkrókur,  parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott, er í miðju eignar, parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting, baðker og sturta, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum að hluta. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, parket á gólfi. 
Herbergi 2:  Gott herbergi inn af stofu, parket á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla er undir útitröppum.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er framan við íbúð.

Húsið: Húsið samanstendur af Drápuhlíð 10 -12. Það er steinsteypt og byggt árið 1950. Í Drápuhlíð 12 eru fjórar íbúðir. 
Lóð: Sameiginleg 456,8 fm skjólgóð gróinn lóð móti suðri, steyptar tröppur að húsi. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að:
* Endurnýja glugga í stærra svefnherberginu og stofu / borðstofu.
* Nýleg rafmagnstafla í íbúð.
* Búið er endursteina húsið.
* Skólp og dren var lagfært um 2012. Voru myndaðar 2025 og voru í lagi. 

Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskólar.  Í göngufæri er skóli Ísaks Jónssonar, Hlíðaskóli, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Verslunarskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Kringlan. Stutt er í útivistarsvæðin Klambratún, Öskjuhlíð og Nauthólsvík. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
72.500.000 kr.825 þ./m²
+20,8% á 3 árum
27. apríl 2023Þinglýstur kaupsamningur
60.000.000 kr.683 þ./m²
+53,8% á 5 árum
11. desember 2017Þinglýstur kaupsamningur
39.000.000 kr.444 þ./m²
+84,6% á 6 árum
13. október 2011Þinglýstur kaupsamningur
21.132.000 kr.240 þ./m²
+0,2% á 3 árum
28. apríl 2008Fyrsta sala
21.100.000 kr.240 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Drápuhlíð 12

105 Reykjavík
72.500.000 kr.825 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1950TegundFjölbýlishúsStærð87,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20303889Fasteignamat69.750.000 kr.Brunabótamat40.450.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑