1 af 11
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun kynnir: Atvinnuhúsnæði byggt árið 2022. Gott geymslubil á lokuðu afgirtu svæði að Borgarhellu 15, bil A endabil með glugga.Símahlið er á svæði.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
Bilið er skráð geymsla 42,5 fm. Milliloft hefur verið sett upp í rýminu og eru það óskráðir fermetrar. Heitt og kalt vatn, skolvaskur og niðurfall í gólfi.
Þriggja metra háar innkeyrsludyr og einnig sér inngangur um hurð.
Lagnir eru tilbúnar í rými til að setja upp salernisaðstöðu, auðvelt að stúka af.
Sameiginlegt salerni er í enda á húsalengju nr. 13 ásamt inntaki og rafmagni húsa.
Malbikuð lóð. Svæðið er lokað með girðingu og aðgengi í gegnum rafmagnshlið.
Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist hið selda í skuldaskilum og að seljandi getur því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína. Seljandi bendir því kaupanda á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á hinu selda og leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar og til að afla sér upplýsinga um skipulag, byggingarleyfi, byggingarleyfis- og gatnagerðargjöld, skipulagsgjöld, ábyrgðir byggingarstjóra og iðnmeistara ásamt úttektum og öðrum gögnum varðandi eignina hjá skipulags- og byggingaryfirvöldum. Kaupverð tekur mið af ástandi hins selda sem selst í því ástandi sem hið selda var í við nákvæma skoðun kaupanda og athugun hjá opinberum aðilum og hann sættir sig við að öllu leyti.
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Borgahella 15
221 Hafnarfjörður
22.900.000 kr.534 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2022TegundAtvinnuhúsnæðiStærð42,9 m²FasteignanúmerF251920721Fasteignamat15.750.000 kr.Brunabótamat14.000.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 11 myndir
Upp ↑









