fasteignasölur.is
Engjavík 19
1 af 45

Um eignina

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Engjavík 19. Rúmgott nýtt og vandað einbýlishús með bílskúr. Virkilega góð fjölskyldueign. 
Fjögur stór herbergi og tvö baðherbergi og sérlega rúmgott og fallegt eldhús. 

Húsið getur verið laust fljótlega.
Seljendur skoða að taka minni eign á Selfossi upp í kaupin.


Íbúðin er 154,7 fm. og bílskúr 49,4. Alls 204,1 fm.

Engjaland 19 er timburhús klætt með smábáru og standandi timburklæðningu. Möl í innkeyrslu. þökulögð lóð. Steypt stétt við gönguhurð í bílskúr. Steyptir staurar á lóðarmörkum austan megin.
80 fm sólpallur með skjólveggjum. Kominn heitur pottur og stýring.

Nánari lýsing: 
Forstofa með fataskáp.
Baðherbergi með sturtu við hlið forstofu.
Hol í miðrými hússins er rúmgott og herbergin koma öll út frá því.
Stofa, borðstofa og eldhús í opnu og björtu rými. Rennihurð út á sólpall. Mjög stór eldhúsinnrétting, Borðplata frá Fanntófell. Stórt spanhelluborð tveir ofnar innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir.
Svefnherbergi eru fjögur og öll rúmgóð 10-15 fm. með fataskápum.
Þvottahús með innréttingu.
Bílskúr er eitt opið rými.

Harðparket er á gólfi. Hljóðdúkur er í loftum, hiti í gólfi með stýringum. Innbyggð ledlýsing. Flísalagt baðherbergi, innrétting og sturta. Þiljur á veggjum. Flísalagt þvotthús með innréttingu og miklu skápaplássi og þaðan innangengt í stóran bílskúr, málað gólfi. Fellistigi upp á milliloft yfir bílskúr. Gönguhurð í bílskúr á hlið hússins.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið skoðun hjá fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
118.900.000 kr.583 þ./m²
+61,8% á 2 árum
15. mars 2024Þinglýstur kaupsamningur
73.500.000 kr.360 þ./m²
+12,5% á 1 ári
21. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
65.312.000 kr.320 þ./m²
+18,5% á 1 ári
4. júlí 2023Fyrsta sala
55.107.000 kr.270 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Engjavík 19

800 Selfoss
118.900.000 kr.583 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2023TegundEinbýlishúsStærð204,1 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF251902328Fasteignamat120.450.000 kr.Brunabótamat126.600.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑