fasteignasölur.is
Lækjasmári 19
1 af 25

Um eignina

LANDMARK kynnir:  Mikið endurnýjuð og falleg 66,1 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. og efstu hæð í litlu fjölbýli í Smáranum í Kópavogi.  Frábær staðsetning þar sem göngufæri er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir. Óinnréttað þakrými fylgir.

Nýlegar endurbætur:  Eignin var endurnýjuð að innan fyrir nokkrum árum.  Árið 2023 var gler endurnýjað í íbúðinni.  Verið er að mála þak á húsinu.  Búið er að endurnýja rafmagn í íbúðinni.  


Forstofa er með parketi á gólfi og nýlegum fataskápum.
Svefnherbergið er smekklegt með parketi á gólfi, áfastri veggklæðningu með innfelldri lýsingu og fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni, baðkari með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan og borðstofan eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi.  Útgengt út á suðvestur svalir.
Eldhúsið er með smekklegri dökkri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, vinkæli og ofni í góðri vinnuhæð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.

Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar, 7,3 fm ásamt sameiginlegum rýmum.

Eigninni fylgir þakrými merkt 0302 sem er óinnréttað og er skv skráningartöflu 55,2 fm að botnfleti.  Nýtanlegir fermetrar því færri.  Möguleiki er að opna úr íbúð upp í þetta rými og innrétta.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
--------------------------------------------------------------

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
66.000.000 kr.998 þ./m²
+63,0% á 5 árum
12. mars 2021Þinglýstur kaupsamningur
40.500.000 kr.613 þ./m²
+121,3% á 14 árum
17. apríl 2007Fyrsta sala
18.300.000 kr.274 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lækjasmári 19

201 Kópavogur
66.000.000 kr.998 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2000TegundFjölbýlishúsStærð66,1 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF22306702Fasteignamat57.850.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑