fasteignasölur.is
Indriðastaðahlíð 162
1 af 41

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Glæsilegt heilsárshús með stórri eignarlóð, miklu útsýni, bílskúr og stórri verönd allt um kring. Húsið stendur mjög hátt í landi Indriðastaða, í lokuðu hverfi með aðgangansstýringu. Góð aðkoma er að húsinu sem stendur á 6.237 fm eignarlóð fremst í Skorradalnum. Gólfhiti og heitur pottur á verönd. 

Sjá hér myndband af eigninni

***Skipti á ódýrari eign koma til greina***

 
Indriðastaðahlíð 162 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt: 01-01, birt stærð 266,5 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 26,6 fm ásamt 77,7 fm bílskúr, efri hæðin er skráð 162,2 fm eða samtals: 266,5 fm. 

Nánari lýsing eignar: Neðri hæðin
skiptist í bílskúr, opið rými, stórt þvottahús og innaf bílskúrnum er gluggalaust rými. Bílskúrinn er með sjálfvirkum hurðaopnara. Expoxy á gólfum neðri hæðar. Við þvottahús er stigi upp á efri hæðina. Aðalinngangur er sunnanmegin við húsið. Komið er inn í góða forstofu. Frá forstofu tekur við opið rými. Björt og rúmgóð stofa með stórglæsilegu óhindruðu útsýni út á stórbrotna náttúrufegurð. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með góðu geymslu- og vinnuplássi, eldunareyja. Rúmgóður borðkrókur með útgangi út timburpallinn / svalirnar með glæsilegu útsýni. Innaf borðkróknum er mjög rúmgott svefnherbergi og innaf því er baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpalinn / svalirnar og þaðan í heitan pottSetustofa / sjónvarpsstofa með útgangi út á timburpallinn / svalirnar. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, Walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpall / svalirnar. Þrjú svefnherbergi til viðbótar eru í húsinu og er fataskápur í einu herbergjanna. Gólfefni: parket og flísar á efri hæð, epoxý á neðri hæð.

Afar glæsilegt sumar- / heilsárshús á vinsælum, fallegum og friðsælum stað fremst í Skorradalnum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu í Borgarnesi. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Indriðastaðahlíð 162

311 Borgarnes (dreifbýli)
Tilboð
Sumarhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2011TegundSumarhúsStærð266,5 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF23246407Fasteignamat72.950.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑