fasteignasölur.is
Sunnubraut 14
1 af 43

Um eignina

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott 7 herbergja einbýlishús ásamt bílskúr að Sunnubraut 14 í Keflavík.

Frábær staðsetning í göngufæri við skóla, leikskóla og íþróttamannvirki sem og flesta þjónustu.
Eignin var mikið endurnýjuð fyrir 10 árum. 
** Gluggar
** Lagnir, skolp og rafmagn
** Allar innréttingar, innihurðar og gólfefni

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús, sjónvarpsrými og stofa/borðstofa eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi.  Eikar eldhúsinnrétting með lítilli eyju. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp.  Frá eldhúsi og stofu er útgengt á baklóð.
Baðherbergi með flísum á gólfi, innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar.
Herbergi með parketi á gólfi.
Efri hæð:
Stigi
á milli hæða er teppalagður. Undir stiga er góð geymsla með flísum á gólfi.
Hol efri hæðar með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar eru góðir fataskápar. Útgengt frá hjónaherbergi á svalir.
Barnaherbergin 4 eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og fibo trespo klæðningu á veggjum. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, tvöfalt baðkar og sturta. Frá baðherbergi er aðgengi að háalofti sem býður upp á ýmsa möguleika þar sem loftaplatan er steypt og lofthæð í risi er góð.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Bílskúr er skráður 25,5 fm. Hann er einangraður og klæddur.
Innkeyrslur eru hellulagðar, snjóbræðsla er í innkeyrslunni við bílskúrinn.  Á baklóð hússins er góð verönd, þar er heitur pottur.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða hakon@prodomo.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Sunnubraut 14

230 Reykjanesbær
115.000.000 kr.581 þ./m²
Einbýlishús7 svefn · 2 bað
Byggingarár1958TegundEinbýlishúsStærð197,8 m²Herbergi8BílskúrFasteignanúmerF20908373Fasteignamat90.150.000 kr.Brunabótamat100.700.000 kr.
Skráð hjá
PRODOMO ehf
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑